Erlent

David Attenborough: Heimshöfunum aldrei verið ógnað jafn mikið

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
David Attenborough segir að mannkynið hafi ríka skyldu til að huga að höfum heimsins.
David Attenborough segir að mannkynið hafi ríka skyldu til að huga að höfum heimsins. vísir/getty
Heimshöfunum hefur aldrei verið ógnað jafn mikið segir Sir David Attenborough, einn þekktasti sjónvarpsmaður og náttúrufræðingur heims. Höfin séu gríðarlega mikilvægur hluti af vistkerfi heimsins svo allt líf á jörðinni ræðst af því hvað maðurinn gerir í framtíðinni.

Attenborough mun vekja athygli í þessu í lokaþætti þáttaraðar sinnar Blue Planet 2. Í þættinum mun hann fjalla ítarlega um hvaða áhrif loftslagsbreytingar, plastmengun, ofveiði og jafnvel hávaði hefur á heimshöfin og lífríki þeirra, að því er fram kemur á vef Guardian. Attenborough hefur stundum sætt gagnrýni fyrir að fjalla ekki nógu mikið um skaðleg áhrif mannsins á náttúruna í sjónvarpsþáttum sínum sem jafnan njóta gríðarlegra vinsælda.

„Í mörg ár héldum við að höfin væru svo víðfeðm og íbúar þeirra svo óendanlega margir að ekkert sem við gerðum myndi hafa áhrif. Nú vitum við að við höfðum rangt fyrir okkur,“ segir Attenborough.

„Það er augljóst að gjörðir okkar hafa mikil áhrif á heimshöfin og þeim hefur aldrei verið ógnað jafn mikið í sögunni. Margir telja að nú sé komið að straumhvörfum hvað varðar höfin og stöðu þeirra.“

Gríðarlega mikið af plasti er í sjónum og er það einn helsti mengunarvaldurinn í höfum heimsins.vísir/getty
Sumt myndefnið of átakanlegt til þess að sjónvarpa því

Attenborough segir að mannkynið hafi ríka skyldu til að huga að höfum heimsins þar sem framtíð mannsins og alls annars lífs á jörðinni reiði sig á hvað maðurinn sjálfur geri.

Þáttur Attenborough er á dagskrá Breska ríkisútvarpsins, BBC. Yfirmenn þar höfðu áhyggjur af því að þátturinn yrði of pólitískur og létu kanna þær staðreyndir sem þar komu fram. Þær stóðust allar. Framleiðandinn, Mark Brownlow, segir að það hafi verið ómögulegt að líta fram hjá þeim skaða sem verið er að valda í höfunum.

„Við gátum einfaldlega ekki hundsað þetta og það hefði þá heldur ekki verið rétt frásögn af því sem er að gerast í höfum heimsins. Við erum ekki í einhverri baráttu, við erum bara að sýna hlutina eins og þeir eru,“ segir Brownlow.

Hann sagði jafnframt að myndefni sem hefði verið tekið af albatrosaungum þar sem þeir borða plast sem þeir halda að sé fæða og deyja svo í kjölfarið hafi verið of átakanlegt til þess að hægt væri að sjónvarpa því.

Loftslagsbreytingar valda því að hitastig sjávar hækkar. Þetta hefur skaðleg áhrif á lífríki sjávar, til að mynda kóralla sem eru lífsnauðsynlegir vistkerfinu. Þá er hávaði sem berst frá skipum, ferðamennsku og vinnslu jarðefnaeldsneytis einnig talinn skaðlegur fyrir heimshöfin og lífríki þeirra. Plast er síðan úti um allt í sjónum en tökulið Blue Planet 2 fann plast alls staðar þar sem það fór um.

Þátturinn verður sýndur á BBC 1 á sunnudagskvöld.


Tengdar fréttir

Afkvæmi sjávardýra í mestri hættu

Súrnun sjávar mun hafa mikil áhrif á lífríki sjávar ef ekki tekst að grípa í taumana og draga úr útblæstri á jörðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×