Sport

Hardy rústaði öðrum andstæðingi sínum | Myndband

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Greg Hardy í leik með Dallas Cowboys.
Greg Hardy í leik með Dallas Cowboys. vísir/getty
Fyrrum NFL-stjarnan Greg Hardy heldur áfram að reyna sig í MMA-heiminum og keppti sinn annan bardaga um síðustu helgi.

Hann vann fyrsta bardagann sinn á aðeins 32 sekúndum en að þessu sinni var hann 96 sekúndur að klára kappann sem mætti honum. Hann hefði líklega klárað hann fyrr ef andstæðingurinn hefði ekki verið svona duglegur að hlaupa í burtu frá honum.

Eins og sjá má á myndskeiðinu sem fylgir þá var þetta augljóslega fáranlegur bardagi. Nýliði sem ekkert kann gegn fyrrum trölli úr NFL-deildinni.





Ekki góð hugmynd að setja þá saman í búrið þó svo það sé pínu fyndið að sjá hversu kjánalegt þetta er.

Hardy stefnir á UFC ef hann þarf að berjast við talsvert betri menn en þetta ef hann ætlar þangað.

MMA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×