Viðskipti innlent

Bankarnir mega reka sameiginlegt seðlaver

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
starfsemi seðlavers felist í megindráttum í því að taka við seðlum og mynt frá útibúum, hraðbönkum og öðrum starfsstöðvum viðskiptabanka og sparisjóða
starfsemi seðlavers felist í megindráttum í því að taka við seðlum og mynt frá útibúum, hraðbönkum og öðrum starfsstöðvum viðskiptabanka og sparisjóða Vísir/Valli
Samkeppniseftirlitið hefur fallist á að veita Landsbankanum, Íslandsbanka og Arion banka undanþágu til stofnunar og reksturs sameiginlegs seðlavers gegn tilteknum skilyrðum. Bankarnir hafa skuldbundið sig til að fara að skilyrðunum sem um ræðir.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu en þar segir að starfsemi seðlavers felist í megindráttum í því að taka við seðlum og mynt frá útibúum, hraðbönkum og öðrum starfsstöðvum viðskiptabanka og sparisjóða, telja og skrá reiðufé, varðveita það, dreifa því til baka til útibúa, hraðbanka og annarra starfsstöðva og koma því, eftir atvikum, til geymslu í Seðlabankanum.

Þar segir einnig að meginrökin fyrir stofnun og rekstri sameiginlegs seðlavers felast í því að samrekstur á þessu sviði getur leitt til töluverðs kostnaðarsparnaðar samanborið við að reka hvert seðlaver með aðskildum hætti hjá hverjum banka fyrir sig. Jafnframt gæti sameiginlegt seðlaver verið betur í stakk búið til að uppfylla öryggiskröfur.

Í sátt milli bankanna þriggja og Samkeppniseftirlitsins kemur fram að henni sé ætlað að tryggja að sameiginlegt seðlaver verði rekið með sjálfstæðum hætti, tryggja jafnt aðgengi allra bærra aðila að hinu sameiginlega félagi, tryggja að verðlagning félagsins miðist eingöngu við þörfina fyrir að viðhalda starfseminni, vinna gegn því að starfsemi félagsins skerði samkeppni á milli eigenda félagsins, stóru viðskiptabankanna þriggja, á markaði fyrir almenna viðskiptabankaþjónustu og tryggja að sú hagræðing sem leiðir af samrekstrinum viðhaldist til framtíðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×