Körfubolti

Blikar eiga tvo nýliða í íslenska kvennalandsliðinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sóllilja Bjarnadóttir er annar nýliðanna úr Breiðabliki en hinn, Isabella Ósk Sigurðardóttir, er þarna í bakgrunni.
Sóllilja Bjarnadóttir er annar nýliðanna úr Breiðabliki en hinn, Isabella Ósk Sigurðardóttir, er þarna í bakgrunni. Vísir/Ernir
Nýliðar Breiðabliks hafa staðið sig frábærlega í Domino´s deild kvenna í vetur og nú hafa tveir leikmenn liðsins verið valið í landsliðið í fyrsta sinn.

Íslenska kvennalandsliðið mun halda til Lúxemborgar milli jóla og nýárs í boði körfuknattleikssambandsins þar í landi sem sem stendur fyrir æfingamóti dagana 27. til 29. desember. Á mótinu leika heimastúlkur frá Lúxemborg ásamt 20 ára liði Hollands.

Íslenska liðið heldur út þann 27. desember og mun vera við æfingar og leika æfingaleiki fram að brottför heim þann 30. desember.

Ívar Ásgrímsson og aðstoðarþjálfarar hans, Bjarni Magnússon og Hildur Sigurðardóttir, hafa valið þrettán leikmenn til að taka þátt í mótinu en þar á meðal eru tveir nýliðar, þær Isabella Ósk Sigurðardóttir og Sóllilja Bjarnadóttir, báðar frá Breiðablik.

Sigrún Sjöfn Ámundadóttir var einnig valin í hópinn en hún er meidd fram til áramóta og verður hún heima að ná sér og mun því ekki fara með í þessa æfingaferð.



Landsliðshópurinn:

Berglind Gunnarsdóttir      Snæfell     15 landsleikir

Birna Valgerður Benónýsdóttir     Keflavík     5 landsleikir

Elín Sóley Hrafnkelsdóttir     Valur     3 landsleikir

Emelía Ósk Gunnarsdóttir     Keflavík     8 landsleikir

Guðbjörg Sverrisdóttir     Valur     9 landsleikir

Helena Sverrisdóttir      Haukar     66 landsleikir

Hildur Björg Kjartansdóttir     Legonés, Spánn     19 landsleikir

Isabella Ósk Sigurðardóttir     Breiðablik     Nýliði

Ragna Margrét Brynjarsdóttir     Stjarnan     41 landsleikir

Sandra Lind Þrastardóttir     Horsholm, Danmörk     16 landsleikir

Sóllilja Bjarnadóttir     Breiðablik     Nýliði

Thelma Dís Ágústsdóttir     Keflavík     9 landsleikir

Þóra Kristín Jónsdóttir      Haukar     4 landsleikir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×