Menning

Endurgera og selja fræg plaköt úr kvikmyndasögunni

Daníel Freyr Birkisson skrifar
Sigurjón Kjartansson, Hugleikur Dagsson og Sjón.
Sigurjón Kjartansson, Hugleikur Dagsson og Sjón. Bíó Paradís
Kvikmyndahúsið Bíó Paradís gefur þessa dagana út kvikmyndaplaköt sem sækja innblástur í meistaraverk úr kvikmyndasögunni. Hönnunin er öll íslenskra hönnuða og listamanna og gefa þeir vinnu sína til styrktar verkefnisins. Um er að ræða söfnun sem fram fer á Karolinafund til styrktar Svörtum Sunnudögum og lýkur henni í kvöld.

Svartir Sunnudagar eru verkefni sem þeir Hugleikur Dagsson, Sigurjón Kjartansson og Sjón byrjuðu með á sínum tíma og eru þeir listrænir stjórnendur þess. Markmið Svartra Sunnudaga er að „halda úti metnaðarfullri kvikmyndadagskrá í menningarbíói Reykjavíkur.“

Fjöldi listamanna leggur hönd á plóg

Samantekt plakatanna ber heitið Almanak 2018 og eru listamennirnir sem skreyta það ekki af verri endanum. Það skreyta til að mynda Hugleikur Dagsson skopmyndateiknari, Siggi Eggertsson grafískur hönnuður, Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir skopmyndateiknari og tónlistarmaður, Örvar Smárason tónlistarmaður og ljóðskáld, auk fjölda annarra.

Almanakið verður ekki sent út í pósti og verður einungis hægt að nálgast það í Bíó Paradís á Hverfisgötu 54 dagana 8.-22. desember. Hér má sjá plakötin sem um ræðir en hægt er að festa kaup á þessu vel heppnaða almanaki á vefsíðu Karolinafund.

Hér að neðan má síðan sjá hvaða listamenn lögðu fram vinnu sína.

Fargo

Alexandra Baldursdóttir grafískur hönnuður og tónlistarmaður.

Freaks

Solveig Pásdóttir teiknari og rappari.



The Adventures of Buckaroo Banzai

Ómar Hauksson grafískur hönnuður og hryllingsmyndasafnari.



Blade Runner

Örvar Smárason tónlistarmaður, ljóðskjáld og kvikmyndanemi.



Brazil

Hugleikur Dagsson skopmyndateiknari, rithöfundur og grínisti.



Edward Scissorhand / The Nighmare Before Christmas

Lóa H Hjálmtýsdóttir skopmyndateiknari og tónlistarmaður.



Ferris Bueller's Day Off

Sigurlaug Gísladóttir (Mr. Silla) tónlistarmaður og listamaður.



Mad Max

Geoffrey Skywalker teiknari og fullt af öðrum hlutum.



Saló, or The 120 Days of Sodom

Þrándur Þórarinsson málari sem er fastur á rangri öld.



Pulp Fiction

Auður Ómars sjónrænn listamaður á brúninni.



Robocop

Siggi Eggertsson grafískur hönnuður með hjarta úr gulli.



Trainspotting

Friðrik Sólnes málari og ljóðskjáld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×