Innlent

Þing kemur saman 10 dögum fyrir jól: „Það átta sig allir á því að tíminn er knappur“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, við undirritun stjórnasáttmálans í liðinni viku.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, við undirritun stjórnasáttmálans í liðinni viku. vísir/eyþór
Þingmálaskrá ætti að liggja fyrir á föstudag að sögn Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra. Þing kemur saman á fimmtudaginn í næstu viku, þann 14. desember, og segir Katrín það í samræmi við það sem lagt var upp með á fundi með stjórnarandstöðunni. Ríkisstjórnin fundaði í dag og var frumvarp til fjárlaga næsta árs meðal annars til umræðu sem og þingsetningin.

 

„Þingmálaskrá liggur ekki fyrir en hún ætti að liggja fyrir á föstudaginn. Það átta sig allir á því að tíminn er knappur,“ segir Katrín í samtali við Vísi en þegar þing kemur saman verða aðeins 10 dagar til jóla. Það er því allt eins líklegt að þingfundir verði milli jóla og nýárs.

Fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar verður fyrsta málið sem lagt verður fyrir þingið, venju samkvæmt. Þá verður jafnframt lagt fram frumvarp til fjáraukalaga þessa árs.

Aðspurð hvaða breytingar muni sjást í nýju fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks, Vinstri grænna og Framsóknarflokks miðað við frumvarp síðustu ríkisstjórnar segir Katrín:

„Breytingarnar eru fyrst og fremst á sviði heilbrigðismála, menntamála og samgöngumála. Það liggur fyrir að pólitísk stefnumótun mun bíða gerðar fjármálaáætlunar eftir áramót en í þessum tilteknu málaflokkum verður vart við ákveðnar breytingar fyrir utan málefni sem tengjast umhverfis-og náttúrumálum og málefnum sem varða kynferðisbrot,“ segir Katrín.

Þórdís Kolbrún skipar varadómara í Hæstarétt í stað Sigríðar Andersen

Fyrir utan frumvörp sem Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, leggur fram liggur fyrir að sett hefur verið af stað vinna í félagsmálaráðuneytinu varðandi NPA og lögfestingu þess. Þá mun Ásmundur Einar Daðason, félagsmálaráðherra, að öllum líkindum einnig leggja fram breytingar um frumvarp á almanntryggingakerfinu svo hækka megi frítekjumark aldraðra upp í 100 þúsund krónur.

Auk þessa hefur Sigríður Á. Andersen, dómsmálaráðherra, boðað breytignar á útlendingalögum svo iðnnám verði þar gert jafnhátt undir höfði og háskólanámi.

Á fundi ríkisstjórnarinnar í dag lagði Katrín fram tillögu um að Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála,- iðanaðar og nýsköðunarráðherra verði sett til að fara með mál er varðar skipun varadómara við Hæstaréttar.

Katrín segir að þetta snúi að skipun varadómara vegna máls sem tveir umsækjendur um dómarastöðu í Landsrétti höfðuðu gegn ríkinu. Setja þarf varadómara í Hæstarétt og víkur dómsmálaráðherra sæti við þá skipun þar sem hún er aðili málsins. 


Tengdar fréttir

Alþingi sett á fimmtudag í næstu viku

Þingsetning verður á fimmtudaginn í næstu viku, 14. desember, og um kvöldið verður umræða um stefnuræðu forsætisráðherra Katrínar Jakobsdóttur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×