Lífið

Aníta og Elínborg meðal „bestu flugfreyja heims“

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Vél WOW air.
Vél WOW air. vísir/vilhelm
Flugfreyjur WOW air, þær Aníta Brá Ingvadóttir og Elínborg Jensdóttir, eru á lista breska blaðsins Independent yfir „bestu flugfreyjur heimsins“. Blaðið fékk fjölmörg flugfélög til þess að deila sögum af afbragðsþjónustu af hálfu flugliða í háloftunum.

Undir yfirskriftinni „Hittið níu af bestu flugfreyjum heimsins,“ fjallar blaðið um þessar sögur en í umfjöllun blaðsins segir að þar sem yfirleitt séu sagðar fréttir af því sem fer úrskeiðis í háloftunum sé kominn tími til þess að draga fram það sem vel er gert.

Sagan sem WOW Air deildi með blaðinu segir frá flugfreyjunum Anítu Brá og Elínborgu sem gerðu sitt til þess að tryggja það að eldri hjón frá Bandaríkjunum myndu ekki missa af skemmtisiglingu sem þau voru á leiðinni í.

Flugu hjónin með WOW Air frá Keflavík til Amsterdam, þaðan sem skemmtisiglingin átti að hefjast. Hins vegar varð seinkun á fluginu og höfðu hjónin áhyggjur af því að þau myndi missa af skipinu. Elínborg og Aníta Brá dóu þó ekki ráðalausar, þær hringdu einfaldlega í skipstjóra skipsins úr flugvélinni og spurðu hvort að mögulegt væri að bíða eftir hjónunum.

„Það þarf að hrósa þeim fyrir þjónustuna,“ skrifuðu hjónin síðar í bréfi til flugfélagsins. „Skipstjórinn beið eftir okkur og bílstjóri beið okkar fyrir utan flugstöðina.“

Komust hjónin því í tæka tíð um borð og tóku þau fram í bréfinu að skemmtisiglingin hefði verið yndisleg.

Lesa má fleiri sögur úr háloftunum í frétt Independent hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×