Viðskipti innlent

Þrír nýir framkvæmdastjórar hjá CenterHotels

Daníel Freyr Birkisson skrifar
CenterHotels rekur Plaza hótelið í Aðalstræti.
CenterHotels rekur Plaza hótelið í Aðalstræti.
Gengið hefur verið frá ráðningum í þrjár nýjar stöður framkvæmdastjóra hjá CenterHotels. Sara Kristófersdóttir sem nú gegnir starfi framkvæmdastjóra sölu- og markaðssviðs verður framkvæmdastjóri viðskiptasviðs. Sigríður Helga Stefánsdóttir, núverandi markaðsstjóri, tekur við sem framkvæmdastjóri markaðssviðs og Stefán Örn Einarsson, núverandi sölustjóri, verður framkvæmdastjóri sölusviðs.

Sara hefur undanfarin 8 ár verið framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs en þar á undan gegndi hún starfi viðskiptastjóra á Norðurlöndum og síðar Bretlandsmarkaði fyrir Booking.com. Eins hefur Sara gegnt ýmsum störfum hjá CenterHotels frá stofnun fyrirtækisins, en hún lauk BSc hons prófi í International hospitality management frá DIT á Írlandi.

Sigríður sem síðastliðin fjögur ár hefur verið markaðsstjóri CenterHotels starfaði áður hjá Iceland Express. Fyrst sem verkefnastjóri í markaðsdeild og síðar sem viðskiptastjóri erlendra viðskipta.  Sigríður lauk B.Sc prófi í viðskipta- og alþjóðamarkaðsfræði frá Háskólanum í Reykjavík.

Stefán kom til starfa hjá CenterHotels árið 2009. Hann hefur sinnt ýmsum ábyrgðarstöðum innan fyrirtækisins og verið sölustjóri hótelkeðjunnar undanfarin 2 ár. Stefán lauk BA prófi í viðskiptafræði frá Leeds Beckett University í Englandi og LL.M prófi í alþjóðaviðskiptalögfræði frá sama háskóla.

CenterHotels er fjölskyldurekin hótelkeðja í eigu hjónanna Kristófers Oliverssonar og Svanfríðar Jónsdóttur. Hjá keðjunni starfa nú um 300 manns á sex hótelum sem öll eru staðsett í miðborg Reykjavíkur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×