Viðskipti erlent

Fer Disney í samkeppni við Netflix?

Daníel Freyr Birkisson skrifar
Walt Disney stofnaði fyrirtækið ásamt bróður sínum, Roy, árið 1923.
Walt Disney stofnaði fyrirtækið ásamt bróður sínum, Roy, árið 1923. getty
Talið er að teiknimyndaframleiðandinn og fjölmiðlafyrirtækið Disney hafi lagt fram risatilboð í framleiðslufyrirtækið 21st Century Fox með það að leiðarljósi að fara í samkeppni við streymiþjónustuna Netflix.

Heimildarmenn vestanhafs segja að viðræðurnar séu langt á leið komnar og gæti kaupverð numið allt að 60 milljörðum dala – 6.280 milljarðar íslenskra króna. Þess má geta að verg landsframleiðsla (VLF) Íslands árið 2016 var 2.420 milljarðar króna samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar.

Með kaupunum fengi Disney hlut í meirihluta í Hulu, hluta í Sky, kvikmyndaframleiðsluver, fréttarásir auk fjölda annarra rása. Auk þess á 21st Century Fox kvikmyndarétt fjölda mynda, til dæmis að X-Men myndunum. Hulu er streymiþjónusta í anda Netflix og á Disney nú þegar 30 prósent í henni en myndi með kaupunum eignast meirihluta.

Talið er að Disney myndi notfæra sér Hulu til þess að fara í samkeppni við Netflix sem hingað til hefur verið ráðandi á þeim markaði.

Um væri að ræða risastóran samruna og fylgjast forsvarsmenn Neflix eflaust áhyggjufullir með samningaviðræðum Disney, sem um áratugabil hefur verið einn stærsti kvikmyndaframleiðandi á markaðinum.

Disney var stofnað af bræðrunum Walt og Roy Disney árið 1923. Það rekur í dag fjölda fyrirtækja, sjónvarpsstöðva og skemmtigarða víða um heim.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×