Bílar

Ford ætlar að selja bíla á Alibaba

Finnur Thorlacius skrifar
Bílasjálfsöluturn eins og Ford ætlar að setja upp í Kína.
Bílasjálfsöluturn eins og Ford ætlar að setja upp í Kína.
Í dag mun Ford undirrita samning við netverslunarsíðuna Alibaba í Kína og mun í kjölfarið hefja sölu bíla sinna á síðunni í Kína. Þessir bílar verða afhentir hjá hefðbundnum Ford sölustöðum í Kína og verða þeir þjónustaðir frá þessum sölustöðum.

Ford hefur ekki gengið vel í sölu bíla sinna í Kína að undanförnu og er þessi ráðstöfun liður í því að bæta þar um. Sala Ford bíla í Kína nam 938.570 bílum á fyrstu 10 mánuðum ársins og minnkaði salan um 5% á milli ára. Á meðan jókst salan hjá keppinautnum General Motors um 2,2% og alls seldi GM 3,13 milljónir bíla á þessum fyrstu 10 mánuðum ársins. Salan hjá GM er því ríflega þreföld á við Ford í Kína.

Ford hyggst líka selja bíla sína í einskonar sjálfsala þar sem bílarnir verða sjáanlegir í háreistum sjálfsölublokkum eins og sést hér á myndinni. Það mun því ekki skorta á frumlegheitin í sölu Ford bíla í Kína á næstunni, en hvort það muni duga til að auka söluna mun tíminn einn leiða í ljós.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×