Innlent

Harður árekstur á gatnamótum Kringlumýrar- og Háaleitisbrauta

Birgir Olgeirsson skrifar
Frá vettvangi slyssins.
Frá vettvangi slyssins. Vísir/Eyþór
Harður árekstur varð á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Háaleitisbrautar rétt í þessu. Mikill viðbúnaður er hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og lögreglu vegna slyssins. Má búast við töluverðum töfum á þessum slóðum meðan unnið er á vettvangi.

Ekki er vitað um hve margir bílar voru í þessum árekstri eða hvort slys hafi orðið á fólki.

Fréttin verður uppfærð þegar frekari upplýsingar liggja fyrir. 

Uppfært klukkan 15:10: 

Um var að ræða árekstur jeppa og lítillar rútu. Tveir voru fluttir af vettvangi með sjúkrabíl.

Uppfært klukkan 16:23: 

Starfi viðbragðsaðila er lokið á vettvangi. Búið er að draga bílana í burtu og hreinsa olíu og kælivökva af götunni. Tveir voru fluttir á slysadeild en ekki liggja fyrir upplýsingar um líðan þeirra. 

Rauði punkturinn sýnir gatnamót Kringlumýrarbrautar og Háaleitisbrautar þar sem áreksturinn varð,Loftmyndir.is



Fleiri fréttir

Sjá meira


×