Innlent

Þingmaður talaði um „þessar vælandi kjellingar í Stígamótum“ í tíma í lagadeild

Ingvar Þór Björnsson skrifar
Konurnar segja í yfirlýsingunni að engu verði breytt nema við byrjum að viðurkenna vandann. Þannig sé hægt að vinna sig út úr þessari meinsemd.
Konurnar segja í yfirlýsingunni að engu verði breytt nema við byrjum að viðurkenna vandann. Þannig sé hægt að vinna sig út úr þessari meinsemd. Vísir/Gva
Konur sem starfa eða hafa starfað innan réttarvörslukerfisins sendu frá sér sameiginlega yfirlýsingu í kvöld undir yfirskriftinni „Þögnin rofin“ og fylgdi yfirlýsingunni 45 reynslusögur. Ein kona segir að eitt atvik hafi setið í sér úr réttarfari í lagadeildinni.

„Eitt atvik situr í mér úr tíma í réttarfari í lagadeildinni þegar tiltekinn nafntogaður lögmaður sem nú situr á þingi var fenginn til að fabúlera við okkur um lögmannsstarfið og hafði frammi mörg niðrandi orð um „þessar vælandi kjellingar í Stígamótum“ og fleira sem tengdist „veseninu“ varðandi öll þessu kynferðisbrotamál.“

Segir hún að þegar hann mætti gagnrýni þá hafi hún fengið það svar að það væri augljóst hvaða „klúbbi“ hún tilheyrði. „Og svo uppskar hann hlátur óharðnaðra samnemenda minna, fyrst og fremst karlkyns sem sáu ekki sólina fyrir þessum snjalla og „orðheppna“ lögmanni.“

Önnur saga er um sama mann en þá kom hann í tíma til að deila reynslusögum og talaði meðal annars um mansal og „hvað það væri nú tilgangslaust femínistaröfl að vera að taka það eitthvað sérstaklega fyrir.“ Segir í frásögninni að þetta hafi verið um það leyti sem fyrsta mansalsfórnarlambið var í fréttum. „Það fauk svo í mig að ég tjáði mig eitthvað, bara til að það kæmi fram eitthvað um mansal, annað en þessi fullkomnlega illa upplýsta skoðun frá honum.“

Allar frásagnirnar má lesa hér.

Eins og kom fram á Vísi í dag verða #MeToo sögur lesnar upp á viðburðum á þremur stöðum á landinu á sunnudag. Ætla konur innan réttarvörslukerfisins að taka þátt í þeim viðburði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×