Viðskipti innlent

Úrslit kosningar flugvirkja í dag

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Flugvirkjar Icelandair vilja ríkulegri launahækkanir en örfá prósent. Stefnir því í hart á milli deiluaðila í samningaviðræðum í vetur.
Flugvirkjar Icelandair vilja ríkulegri launahækkanir en örfá prósent. Stefnir því í hart á milli deiluaðila í samningaviðræðum í vetur. VÍSIR/VILHELM
Niðurstöður úr kosningu flugvirkja Icelandair um vinnustöðvun munu liggja fyrir í dag. Fundað verður hjá ríkissáttasemjara í dag til að reyna að ná sáttum.

„Það liggur ekki fyrir hvenær vinnustöðvunin myndi hefjast ef hún verður samþykkt. Það skýrist þegar niðurstöðurnar koma í ljós,“ segir Gunnar R. Jónsson, varaformaður Flugvirkjafélags Íslands.

Rafræn kosning hófst í fyrradag. Deilan snýr aðeins að flugvirkjum sem starfa hjá Icelandair. Félagið hefur boðað til fundar á mánudag þar sem farið verður yfir stöðu kjaraviðræðna, úrslit kosningarinnar og framhaldið verður kynnt.

Deilu flugvirkja og Icelandair var vísað til sáttasemjara 8. september. Á borði sáttasemjara er einnig deila Félags íslenskra atvinnuflugmanna og Icelandair og deila flugvirkja og Air Atlanta Icelandic.


Tengdar fréttir

Hækkun í anda Salek ekki nóg fyrir flugvirkja

Deilur flugvirkja Icelandair við Samtök atvinnulífsins gefa tóninn í kjaraviðræðum sem fram undan eru í vetur. Forsvarsmenn SA telja ekkert svigrúm til launahækkana en flugvirkjar sætta sig ekki við litla hækkun í anda SALEK.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×