Innlent

Bæjarráð Akureyrar áfrýjar máli Snorra Óskarssonar til Hæstaréttar

Sveinn Arnarsson skrifar
Snorri Óskarsson grunnskólakennari ásamt Einari Gauti lögmanni í dómi.
Snorri Óskarsson grunnskólakennari ásamt Einari Gauti lögmanni í dómi. vísir/auður
Bæjarráð Akureyrar ákvað á fundi sínum í gær að áfrýja dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra í máli gegn Snorra Óskarssyni, fyrrverandi grunnskólakennara bæjarins. Snorri segir málið hið undarlegasta.



Guðmundur Baldvin Guðmundsson, formaður bæjarráðs
Snorra var vikið úr starfi sem grunnskólakennari í Brekkuskóla á Akureyri í júlí árið 2012 vegna ummæla sem hann hafði uppi um samkynhneigð á eigin vefsvæði. Töldu bæjaryfirvöld skoðanir hans og skrif um samkynhneigð vera þess valdandi að hann gæti ekki starfað lengur við barnakennslu. Uppsögn Snorra hefur verið dæmd ólögmæt í ráðuneytinu og hjá dómstólum. Héraðsdómur dæmdi uppsögnina í síðasta mánuði og dæmdi Snorra 6,5 milljónir króna í bætur. Formanni bæjarráðs finnst þessi upphæð of há.

„Við fengum á fundinn álit lögfræðings sem taldi rétt að áfrýja. Það er mikilvægt að svona mál fari alla leið í dómskerfinu. Ég veit svo sem ekki að hvaða niðurstöðu Hæstiréttur muni komast en okkur finnst bæturnar í þessu máli heldur hærri en við reiknuðum með og fordæmi eru um,“ segir Guðmundur Baldvin Guðmundsson, formaður bæjarráðs.

Snorri segir þetta mál ótrúlegt. „Ég hef unnið málið á öllum stigum til þessa. Ég vil heldur láta dæma mér litlar bætur en að semja um þær við bæinn,“ segir Snorri. „Þetta er bænum til ósóma að vera dæmdur ítrekað fyrir handvömm í þessu máli og hafa verið með niðrum sig frá upphafi. Ég er hins vegar auðvitað tilbúinn að fyrirgefa, en það er með fyrirgefninguna að henni verður að fylgja iðrun,“ bætir Snorri við og segist geta beðið fyrir fyrirgefningunni, því þeir viti eigi hvað þeir gjöra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×