Höfnuðu endurupptökubeiðni vegna fangelsisdóms fyrir tilraun til nauðgunar á 15 ára dreng Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 7. desember 2017 23:30 Hæstiréttur dæmdi Anton Yngva í tveggja ára fangelsi fyrir blygðunarsemisbrot gegn 15 ára dreng og fyrir tilraun til nauðgunar.
Endurupptökunefnd hafnaði í dag beiðni Antons Yngva Guðmundssonar um endurupptöku á dómi hæstaréttar frá 15. desember á síðasta ári þar sem hann var dæmdur í tveggja ára fangelsi. Anton Yngvi var dæmdur fyrir blygðunarsemisbrot gegn 15 ára dreng og fyrir tilraun til nauðgunar með því að hóta að dreifa nektarmyndum af brotaþolanum, ef hann hefði ekki kynmök við sig.Hæstiréttur þyngdi dóminn Anton Yngvi var ákærður annars vegar fyrir blygðunarsemisbrot með því að hafa komið fram undir tilbúnu nafni og þóst vera 17 ára, en hann var þá 23 ára, og með því fengið brotaþola til að tjá sig um viðkvæm persónuleg mál og senda af sér nektarmynd. Í seinni lið ákærunnar var honum gefin að sök tilraun til nauðgunar með því að hafa daginn eftir hótað því að dreifa kynferðislegum samskiptum þeirra og myndinni af kynfærum brotaþola ef hann hefði ekki kynferðismök við sig fyrir klukkan 23 um kvöldið. Áður var Anton Yngvi sakfelldur í Héraðsdómi Norðurlands eystra. Í dómnum sagði að brotin hefðu verið sérstaklega gróf. Málinu var svo áfrýjað til hæstaréttar þann 27. maí síðastliðinn og hæstiréttur staðfesti svo niðurstöðu héraðsdóms í desember á síðasta ári. Héraðsdómur hafði dæmt hann í 15 mánaða fangelsi en hæstiréttur þyngdi dóminn í tvö ár. Tveir dómarar voru ósammála og skiluðu sératkvæði þar sem þeir sögðust vilja sýkna Anton Yngva af tilraun til nauðgunar. Í úrskurði endurupptökunefndar kemur fram að grundvöllur Antons Yngva um endurupptöku var meðal annars að hann telji sig hafa verið ranglega sakfelldur vegna málsins. „Þá byggir endurupptökubeiðandi einnig á því að hann hafi verið sakfelldur fyrir mun meira brot en það sem hann hefur framið, það er, að hann hafi með engum hætti gerst sekur um tilraun til nauðgunar enda hafi hann aldrei hitt brotaþola málsins.“Taldi galla á meðferð málsins Einnig kemur fram að Anton Yngvi telji lögreglu ekki hafa gert neina sjálfstæða gagnaöflun, að flest ef ekki öll gögn málsins sem ákæruvaldið byggði kröfur sínar á hafi verið einhliða aflað og þau lögð fram í málinu af brotaþola og móður hans. Í úrskurði endurupptökunefndar kemur fram að að mati ríkissaksóknara bendi ekkert til þess að fölsuð skjöl hafi verið lögð fram í málinu. Kom hann einnig fram með þau rök að ekki hafi verið um blygðunarsemisbrot að ræða þar sem samskipti aðila hafi verið kynferðisleg og svæsin á báða bóga og að þau hafi farið fram með fullum vilja beggja aðila. Að mati endurupptökubeiðanda var niðurstaða dómstóla röng og byggð á vanþekkingu á tækni, misskilningi og röngum forsendum. Enn fremur byggði endurupptökubeiðandi á því að verulegir gallar hafi verið á meðferð málsins þannig að áhrif hafi haft á niðurstöðu þess. Endurupptökunefndin hafnaði beiðni Antons Yngva og 250.000 króna kostnaður málsins greiðist úr ríkissjóð. Úrskurðinn má lesa í heild sinni á vef Dómsmólaráðuneytisins.
Tengdar fréttir Dómur þyngdur fyrir tilraun til nauðgunar: Hótaði að dreifa nektarmynd af fimmtán ára dreng Hæstiréttur Íslands dæmdi í dag karlmann á þrítugsaldri í tveggja ára fangelsi fyrir tilraun til nauðgunar og blygðunarsemisbrot gegn 15 ára dreng. 15. desember 2016 16:00 Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Erlent Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Innlent „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Innlent Fleiri fréttir Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Sjá meira
Dómur þyngdur fyrir tilraun til nauðgunar: Hótaði að dreifa nektarmynd af fimmtán ára dreng Hæstiréttur Íslands dæmdi í dag karlmann á þrítugsaldri í tveggja ára fangelsi fyrir tilraun til nauðgunar og blygðunarsemisbrot gegn 15 ára dreng. 15. desember 2016 16:00