Lífið

Glæný stikla úr Jurassic World: Fallen Kingdom

Anton Egilsson skrifar
Stórleikarinn Chris Pratt er í aðalhlutverki í myndinni.
Stórleikarinn Chris Pratt er í aðalhlutverki í myndinni. Skjáskot
Glæný stikla úr kvikmyndinni Jurassic World: Fallen Kingdom er komin á netið en margir bíða með mikilli eftirvæntingu eftir myndinni sem verður frumsýnd 22. júní á næsta ári.

Myndin er framhald af kvikmyndinni Jurassic World sem kom út árið 2015 og er fjórða tekjuhæsta mynd sögunnar. Leikstjóri myndarinnar er hinn spænski J.A Bayrona og í helstu hlutverkum eru Chris Pratt, Bryce Dallas Howard og Jeff Goldblum.

Horfa má á stikluna hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×