Viðskipti innlent

Skeljungur eignast hlut í Heimkaup, Hópkaup og Bland.is

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Áætluð velta Wedo árið 2017 er um 1,1 milljarður króna.
Áætluð velta Wedo árið 2017 er um 1,1 milljarður króna. Vísir/GVA
Skeljungur hefur fest kaup á þriðjungshlut í Wedo ehf., sem á og rekur stærstu vefverslanir landsins; Heimkaup.is, Hópkaup.is og Bland.is. Um 280 milljón króna hlutafjáraukningu er að ræða og verður fjármagnið notað til að styðja við frekari vöxt hjá félaginu. Samhliða kaupunum fær Skeljungur rétt til að skrá sig fyrir 17 prósent hlut til viðbótar,  sem nýtanlegur yrði næstu þrjú árin. Nýting réttarins myndi tryggja 51 prósent eignarhlut Skeljungs í félaginu.

Samkvæmt fréttatilkynningu frá Skeljungi hafa tekjur Wedo vaxið ört á undanförnum árum og er áætluð velta ársins 2017 um 1,1 milljarður króna, sem er um 47 prósent tekjuvöxtur frá síðasta ári.  Samhliða því að nýta sér mikla aukningu viðskipta á netinu þá hefur félagið aukið vöruframboð sitt verulega og tryggt sig sem leiðandi aðila í netverslun á Íslandi.

„Netverslun er sú tegund viðskipta sem vex hvað hraðast í heiminum með breyttri neysluhegðun almennings og þar er Ísland engin undantekning. Við teljum tækifæri felast í samstarfi Skeljungs og Wedo, sem komi báðum aðilum til góða. Skeljungur er sífellt að leita leiða til að mæta þörfum viðskiptavina sinna og styrkja sölustaði félagsins. Í tilfelli Wedo þá höfum við möguleika á að eignast meirihluta í félaginu, sjáum við tækifæri til nánara samstarfs, og stíga þannig af meiri festu inn á þennan ört vaxandi markað,“ segir Hendrik Egholm, forstjóri Skeljungs.

„Vöxtur félagsins að undanförnu hefur verið mikill. Fjárfesting Skeljungs og aðkoma félagsins að Wedo kemur sér vel í þeirri uppbyggingu sem stendur fyrir dyrum og gerir okkur kleift að gera enn betur í samkeppni um hylli neytenda. Að auki eru kaup Skeljungs á hlut í félaginu mikil viðurkenning fyrir það góða starf sem starfsfólk Wedo hefur unnið undanfarin ár, segir Guðmundur Magnason, forstjóri Wedo.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×