Enski boltinn

Jón Dagur með frábært mark fyrir Fulham í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Dagur Þorsteinsson.
Jón Dagur Þorsteinsson. Vísir/Getty
Unglingalandsliðsmaðurinn Jón Dagur Þorsteinsson skoraði glæsilegt mark fyrir 23 ára lið Fulham í unglingaliðadeild ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld.

Jón Dagur kom Fulham í 1-0 á móti Brighton á lokamínútu fyrir hálfleiks en markið skoraði hann með stórglæsilegu skoti eins og sjá má hér fyrir neðan.  Fulham missti leikinn reyndar niður í 1-1 jafntefli en Fulham liðið hefur verið að gera góða hluti að undanförnu.





„Sá hitti hann. Hann skorar ekki einföld mörk. Íslendingurinn setur boltann upp í bláhornið frá vinstra horni vítateigsins,“ segir í lýsingu á markinu á Twitter-síðu Fulham.











<&/center>



Fleiri fréttir

Sjá meira


×