Innlent

Mikið álag á fíkniefnaleitarhundinum Krafti í desember

Anton Egilsson og Nadine Guðrún Yaghi skrifa
Það er í nógu að snúast hjá fíkniefnaleitarhundinum Krafti en hans helsta verkefni er að leita að fíkniefnum í pökkum hjá Póstinum en þeir eru aldrei fleiri en í desember. 

Labradorhundurinn Kraftur er fíkniefnaleitarhundur tollgæslunnar og hefur hann starfað sem slíkur í rúm sex ár. Verkefnin þessa dagana snúa aðallega að því að leita í tugum póstsendinga hjá Póstmiðstöðinni en í desember er ansi mikið að gera hjá þeim Krafti og Stefáni Geir Sigurbjörnssyni, þjálfara hans.

„Þetta er mjög mikið álag hjá Krafti núna. Margfalt póstmagn sem kemur og lítil pása,“ sagði Stefán í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld. 

Stefán segir að vikulega finni Kraftur fíkniefni en vill af öryggisástæðum ekki gefa það nákvæmara upp. Helstu efnin sem hann er þjálfaður á eru amfetamín, kókaín, alsæla, hass og marijúana.

Það er augljóst að Kraftur er starfi sínu vaxinn en í myndskeiðinu hér að ofan má sjá þegar hann finnur 10 grömm af kókaíni sem einhver reyndi að smygla til landsins en efnið var vel falið í einum pakkanum. Stefán verðlaunar Kraft svo fyrir fíkniefnafundinn með því að leyfa honum að leika sér með bolta.

Segir hann að Kraftur sé ákveðinn en afar ljúfur og góður.

„Hann fær oftast sínu framgengt og það er kannski líka einn af þeim þáttum fyrir þá hunda sem veljast í þetta starf að það er að hafa háa veiðihvöt og að geta unnið alveg sleitulaust.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×