Menning

Óskalög Mótettukórsins

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Félagar í Mótettukórnum lögðu hugmyndir í púkk sem Hörður valdi úr.
Félagar í Mótettukórnum lögðu hugmyndir í púkk sem Hörður valdi úr.
Stemningin verður hátíðleg í jólaskreyttri Hallgrímskirkju um helgina,“ segir Katrín Sverrisdóttir, nýr formaður Mótettukórs Hallgrímskirkju, en hinir árlegu jólatónleikar kórsins verða haldnir í dag klukkan 17 og aftur á morgun á sama tíma. Einsöngvari er Elmar Gilbertsson tenór, Björn Steinar Sólbergsson leikur á orgel og Hörður Áskelsson stjórnar.

Yfirskriftin að þessu sinni er O magnum mysterium eða Hið mikla undur. Efnisskráin endurspeglar það. Þar eru ýmsar jólalagaperlur sem Katrín segir langt síðan kórinn hafi sungið.

„Við gerðum þetta þannig núna að kórfélagar máttu koma með sín óskalög, hugmyndir og tillögur. Svo var valið úr þeim, Hörður hafði umsjón með því. Við ákváðum líka að biðja hann Elmar að vera með okkur, hann hefur gert það áður. Bæði syngur hann með okkur nokkur lög, eða öllu heldur við með honum því hann er þar í aðalhlutverki en við tökum undir í viðlögunum, og svo syngur hann líka einn.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×