Handbolti

Fannar með þrjú mörk í sigri

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Fannar Þór Friðgeirsson.
Fannar Þór Friðgeirsson. vísir/getty
Fannar Þór Friðgeirsson skoraði þrjú mörk í sigri Hamm-Westfalen á HG Saarlouis í þýsku 1. deildinni í handbolta í kvöld.

Heimamenn í Hamm-Westfalen byrjuðu leikinn betur og komust í 3-0 forystu. Gestirnir vöknuðu þá til leiks, en þó ekki alveg og komust heimamenn fljótt í sex marka forystu. Þeir fóru inn í hálfleikinn með 17-14 forystu.

Gestirnir náðu aldrei að vinna niður forystuna og fór svo að leikurinn endaði með fjögurra marka sigri, 32-28.

Fannar var sem áður segir með þrjú mörk, en hann skoraði þau úr fimm skotum. Hann var einnig með tvær stoðsendingar.

Hamm-Westfalen er í fimmta sæti deildarinnar með 23 stig, níu stigum frá toppliði Bergischer.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×