Viðskipti innlent

Hönnunarverslunin Kraum gjaldþrota: „Nánast ógerlegt“ að reka fyrirtæki í miðborginni

Daníel Freyr Birkisson skrifar
Mynd úr verslun Kraums í Aðalstræti 10 en hún flutti árið 2016.
Mynd úr verslun Kraums í Aðalstræti 10 en hún flutti árið 2016. vísir/ernir
Hönnunarverslunin Kraum var á dögunum tekin til gjaldþrotaskipta með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur. Lögbirtingablaðið birti tilkynningu þess efnis. Fyrrverandi framkvæmdastjóri verslunarinnar segir það nánast ógerlegt að reka fyrirtæki í miðbænum. Nýir eigendur tala á svipuðum nótum.

Fyrirtækið greindi nýlega frá fyrirhuguðum flutningum af Laugavegi yfir á Hljómalindarreitinn, Hverfisgötu 34 og þar sem opnuð verður ný verslun. Kraum tók til starfa árið 2007 í elsta húsi Reykjavíkur í Aðalstræti.

Dapurlegt um að litast í miðbænum

Mikið hefur verið rætt um erfitt rekstrarumhverfi verslana, veitinga- og skemmtistaða í miðbænum. Anna María Jónsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Kraums, segir reksturinn ekki auðveldan. „Í hreinskilni sagt er það nánast ógerlegt [að reka verslun í miðbænum]. Það er þess vegna sem mjög margar verslanir hafa flúið og er orðið afar dapurlegt um að litast í miðbænum.“

Fréttastofa spurði Önnu hvort að Kraum hafi fengið að finna fyrir hækkandi leiguverði. „Algjörlega, þegar við vorum að flytja [úr Aðalstræti] var leiguverð farið að hækka gríðarlega mikið.“

Anna María Jónsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Kraums.Vísir/Ernir
Vísir greindi frá því þegar fyrirtækið þurfti að flytja sig um set úr Aðalstræti 10 vegna hækkandi leigu Minjaverndar, sem leigði þá út húsið.

Nýir eigendur tala á svipuðum nótum

Fyrir um það bil ári fór fram sala á Kraum og tóku nýir eigendur við. Það er fyrirhuguð áætlun þeirra að flytja verslunina á Hljómalindarreitinn í umhverfi við tiltölulega nýbyggt Canopy-hótel. „Rekstur Kraum í þeirri mynd sem hann var gekk því miður ekki eftir. Það er þó engum blöðum um það að fletta að himinhátt leiguverð í miðbænum hafði sína sögu að segja hvað reksturinn varðar,“ kemur fram í skriflegri yfirlýsingu sem fréttastofu barst.

Þeir viðra áhyggjur sínar yfir þróuninni. „Þetta er mikið áhyggjuefni því allir vilja að sjálfsögðu sjá blómlega borg með fjölbreyttri þjónustu. Það verður fróðlegt að sjá hvað gerist með nýjum verslunar- og þjónusturýmum sem verið er að byggja upp, meðal annars í Hafnarstræti, á Hörpureitnum og víðar í miðborginni. Vonandi verður það til þess að leiguverð lækki nokkuð svo fjölbreytt flóra verslunar og þjónustu fái að vaxa og dafna í miðborginni.“

Ekki hafa fengist skýr svör við því hvaða félag sér um rekstur nýrrar verslunar.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×