Innlent

Mjög kuldalegt í kortunum

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Búast má við hvassviðri og éljangangi eða snjókomu norðan- og austantil á landinu.
Búast má við hvassviðri og éljangangi eða snjókomu norðan- og austantil á landinu. VÍSIR/VILHELM
Veðurstofan segir að veðurspá næstu daga sé „mjög kuldaleg.“ Mikil hæð verður yfir Grænlandi og lægðirnar fara framhjá langt fyrir sunnan land.

„Við erum því föst í kaldri norðaustanátt alla vikuna með éljagangi fyrir norðan og austan, en lengst af björtu veðri sunnan heiða,“ eins og veðurfræðingur orðar það.

Það mun svo bæta í vind og ofankomu á morgun. Frá þriðjudegi má því búast við hvassviðri og éljangangi eða snjókomu norðan- og austantil á landinu. Gul viðvörun er í gildi frá og með kvöldinu á fjórum landssvæðum; Breiðafirði, Ströndum og Norðurlandi vestra, Vestfjörðum sem og á Norðurlandi eystra.

Er því ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám en Veðurstofan áætlar að það dragi úr vindi og éljum næstu helgi.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag:

Norðan- og norðaustan 15-23 m/s, en mun hægari um landið suðaustanvert. Snjókoma eða él um landið N- og A-vert, en yfirleitt þurrt og bjart suðvestantil. Frost 0 til 10 stig, kaldast í innsveitum.

Á miðvikudag og fimmtudag:

Norðan og norðaustan hvassviðri og él, en bjart að mestu sunnan og vestanlands. Kalt í veðri.

Á föstudag:

Norðanátt og él, dregur úr vindi og ofankomu vestantil þegar líður á daginn, en bætir í vind allra austast. Áfram kalt í veðri.

Á laugardag:

Útlit fyrir norðvestanátt með dálitlum éljum við NA-ströndina, en hægari breytileg átt og víða léttskýjað annars. Talsvert frost, einkum inn til landsins.

Á sunnudag:

Útlit fyrir sunnan og síðar suðvestanátt með snjókomu eða slyddu. Minnkandi frost og hlánar við suðvesturströndina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×