Innlent

Réttarhöldin yfir Sveini Gesti hefjast ekki fyrr en á miðvikudag

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Sveinn Gestur Tryggvason í héraðsdómi Reykjavíkur við þingfestingu málsins.
Sveinn Gestur Tryggvason í héraðsdómi Reykjavíkur við þingfestingu málsins. VÍSIR
Uppfært klukkan 9:15

Aðalmeðferðin í málinu hefst ekki fyrr en á miðvikudag. Samkvæmt dagskrár héraðsdóms átti hún að hefjast í dag og standa til fimmtudags. Að sögn verjanda Sveins Gests mun aðalmeðferðin ekki hefjast fyrr en á miðvikudag og er áætlað að hún standi yfir í tvo daga.

Upprunaleg frétt hér að neðan

Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn Sveini Gesti Tryggvasyni vegna andláts Arnars Jónssonar Aspar hefst í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Gert er ráð fyrir því að réttarhöldin standi yfir í fjóra daga. Sveinn er ákærður fyrir stórfellda líkamsárás en ekki manndráp, eins og Vísir greindi frá í lok ágúst. Hann hefur setið í gæsluvarðhaldi frá 8. júní síðastliðnum.

Sveinn Gestur er einn ákærður í málinu en upphaflega voru sex handteknir. Fjórum var fljótlega sleppt og þeim fimmta, Jóni Trausta Lútherssyni, nokkrum vikum síðar eftir að Hæstiréttur neitaði að fallast á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir honum. Sveinn Gestur og Jón Trausti voru báðir í einangrun í nokkra daga á meðan gæsluvarðhaldsvist þeirra stóð.

Í ákærunni segir að Arnar hafi látið lífið vegna þess að öndunarhæfni hans minnkaði mikið. Brotið getur varðað allt að sextán ára fangelsi þegar bani hlýst af árásinni.

Sveinn Gestur neitar alfarið sök og í yfirlýsingu frá lögmanni hann sem send var fjölmiðlum var því haldið fram að Sveinn Gestur hafi aldrei veist að hinum látna „heldur var umbjóðandi minn ásamt öðrum sakborningum í málinu að verjast áras frá hinum látna.“

Barnsmóðir og sambýliskona Arnars krefst hátt í 50 milljóna króna í skaðabætur fyrir sig og dóttur sína úr hendi Sveins Gests.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×