Fótbolti

Gríðarleg aðsókn í miða á HM í Rússlandi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Stuðningsfólk íslenska landsliðsins fjölmennir vonandi til Rússlands næsta sumar.
Stuðningsfólk íslenska landsliðsins fjölmennir vonandi til Rússlands næsta sumar. Vísir/Eyþór
Knattspyrnusamband Íslands vekur athygli á því á heimasíðu sinni í dag að það sé gríðarlega aðsókn er í miða á Heimsmeistarakeppnina í Rússlandi sem fer fram næsta sumar.

Þetta verður söguleg keppni fyrir okkur Íslendinga enda íslenska karlalandsliðið með í fyrsta sinn í 88 ára sögu heimsmeistarakeppninnar.

Annar hluti miðasölu hófst á fimmtudaginn var og aðeins 24 klukkustundum eftir að miðasalan opnaði aftur höfðu um 98 prósent af þeim miðum sem í boði voru í þeim hluta verið seldir.

Það er því ljóst að mjög mikill áhugi er fyrir því að sjá leikina í Rússlandi. Í kringum 51 prósent af umsóknum um miða hefur komið frá Rússlandi en hin 49 prósent hafa dreifst kringum heiminn.

Aðdáendur frá Argentínu, Mexíkó, Bandaríkjunum, Brasilíu, Kólumbíu, Kína, Ástralíu, Þýskalandi og Indlandi fylla topp tíu listann eins og fram kemur í fréttinni á heimasíðu KSÍ.

„Í ljósi þessarar gríðarlegu aðsóknar í miða vill FIFA benda stuðningsmönnum á að FIFA.com/tickets er eina löglega vefsíðan til að kaupa miða á HM í Rússlandi 2018. Miðar sem eru keyptir annars staðar frá munu sjálfkrafa verða ógildir þegar upp kemst um það að þeir hafi verið keyptir í gegnum þriðja aðila,“ segir ennfremur í fréttinni.

Söluglugginn sem er opinn núna lokar síðan 28. nóvember næstkomandi. Sá næsti opnar ekki fyrr 5. desember eða eftir að drátturinn í lokakeppnina er búinn.

Hér er um að ræða aðalhluta miðasölu til stuðningsmanna Íslands og verður sá sölugluggi opinn til 31. janúar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×