Innlent

Bíl ekið inn um aðalinngang Hagkaups á Eiðistorgi

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Frá vettvangi.
Frá vettvangi. vísir
Umferðaróhapp varð við Hagkaup á Eiðistorgi núna á sjötta tímanum þegar jeppa af gerðinni Toyota var ekið inn um aðalinngang verslunarinnar.

Samkvæmt upplýsingum frá starfsmanni í versluninni slasaðist enginn við óhappið, hvorki ökumaður né neinn sem var inni í búðinni þar sem enginn varð fyrir bílnum.

Lögreglan var ekki komin á staðinn þegar Vísir hringdi í verslunina en var á leiðinni. Ekki hafa fengist upplýsingar frá lögreglu um óhappið.

Búðin er enn opin samkvæmt upplýsingum frá starfsmanninum en tveir aðrir inngangar eru inn í búðina.

Eins og sjá má urðu þó nokkrar skemmdir á inngangi verslunarinnar.vísir



Fleiri fréttir

Sjá meira


×