Erlent

Ekki ósennilegt að kosið verði á ný í Þýskalandi

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Í Þýskalandi blasir nú við erfiðasta stjórnarkreppa sem Þjóðverjar hafa staðið frammi fyrir í marga áratugi eftir að síðari viðræður Kristilegra demókrata, Frjálslynda flokksins og Græningja sigldu í strand rétt fyrir miðnætti í gærkvöldi. Forseti Þýskalands kallaði í dag eftir því að flokkarnir færu aftur að samningaborðinu.

Ríkisstjórnarsamstarf blokkar Kristilegra demókrata (CDU/CSU, Frjálslynda flokksins (FDP) og Græningja hefur verið kallað Jamaíkastjórnin eða Jamaíkabandalagið og er það skírskotun til lita í merkjum flokkanna sem eru þeir sömu og í þjóðfána Jamaíka.

Önnur umferð stjórnarmyndunarviðræðna þessara flokka hófst á föstudag. Laust fyrir miðnætti í gærkvöldi lá svo fyrir að flokkarnir þrír myndu ekki ná saman um myndun nýrrar ríkisstjórnar.

Tæpir tveir mánuðir eru frá þingkosningunum 24. september. Frank-Walter Steinmeier forseti Þýskalands var ómyrkur í máli þegar hann ávarpaði fjölmiðla í Berlín í dag.

„Við stöndum frammi fyrir fordæmislausum aðstæðum sem hafa ekki sést í Þýskalandi í 70 ár. Nú reynir á stjórnmálaflokkana sem aldrei fyrr. Stjórnarmyndun er alltaf erfitt ferli baráttu og deilna en verkefnið að mynda stjórn er sennilega æðsta verkefni sem kjósendur fela flokkunum í hverju lýðræðisríki. Og þetta verkefni er enn fyrir hendi,“ sagði Steinmeier í dag. Hann bað flokkanna um að axla ábyrgð og snúa aftur að samningaborðinu. 

Sabine Leskopf varaborgarfulltrúi flutti hingað til lands frá Þýskalandi um aldamótin síðustu.Vísir/Þorbjörn Þórðarson
Sabine Leskopf varaborgarfulltrúi er fædd í Þýskalandi en flutti hingað til lands um aldamótin.

„Þetta er útfrá stjórnarskránni frekar flókið af því að í Þýskalandi þarf að kjósa fyrst kanslara. Ef það gengur ekki upp með hreinum meirihluta þarf að kjósa aftur og aftur. Svo er þetta svolítið ákvörðun forsetans, hvað hann gerir, hvort hann tilnefni kanslara í minnihlutastjórn eða hvort kosið verði á ný. En þingið getur ekki leyst sjálft sig upp. Það gengur ekki,“ segir Sabine. 

Forseti Þýskalands getur tilnefnt kanslara í minnihlutastjórn ef flokkarnir koma sér ekki saman um kanslaraefni. Frank Walter-Steinmeier er ekki spenntur fyrir því enda hefur það aldrei verið gert áður. Martin Schulz leiðtogi Jafnaðarmanna hefur útilokað samstarf með Kristilegum demókrötum. Það er því ekki ósennilegt að boðað verði til nýrra kosninga í Þýskalandi. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×