Lífið

Christina Aguilera minntist Whitney Houston með þessum frábæra flutningi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Geggjaður flutningur.
Geggjaður flutningur.
American Music Awards fóru fram í Los Angeles á sunnudagskvöldið og vann Bruno Mars flest verðlaun, eða alls sjö.

Nú eru 25 ár liðin frá því að kvikmyndin The Bodyguard kom út með Kevin Costner og Whitney Houston í aðalhlutverkunum.

Lagið I Will Always Love You sló rækilega í gegn þegar myndin kom út og í tilefni af því flutti Christina Aguilera lagið í Los Angeles á sunnudaginn. Whitney Houston lést langt fyrir aldur fram árið 2012.

Flutningurinn hefur vakið mikla athygli og stóð Aguilera sig mjög vel eins og sjá má hér að neðan. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×