Erlent

Hermaðurinn vaknaður og horfir á suðurkóreskar kvikmyndir

Samúel Karl Ólason skrifar
Hermaðurinn fluttur á sjúkrahús í Seoul.
Hermaðurinn fluttur á sjúkrahús í Seoul. Vísir/EPA
Hermaður sem var skotinn á flótta yfir landamæri Norður- og Suður-Kóreu er kominn aftur til meðvitundar. Hann er ekki lengur í lífshættu og eitt af því fyrsta sem hann bað um var að fá að horfa á sjónvarp. Hermaðurinn ver nú tíma sínum á sjúkrahúsi í Seoul við að horfa á suðurkóreskar kvikmyndir.

Ekki er enn búið að nafngreina hermanninn, en samkvæmt frétt Yonhap fréttaveitunnar gekkst hann undir tvær umfangsmiklar aðgerðir vegna sára sinna. Hann var skotinn fimm eða sex sinnum í olnbogann, öxlina og kviðinn af mönnum sem höfðu verið félagar hans í norðurkóreska hernum nokkrum sekúndum áður.



Sjá einnig: Skotinn af félögum sínum þegar hann hljóp yfir landamærin



Í samtali við Yonhap segir ónafngreindur embættismaður að hermaðurinn þjáist af miklum kvíða eftir flóttann og sársauka vegna sára sinna. Til að eiga við kvíðann og sannfæra manninn um að honum hafi tekist að komast til Suður-Kóreu hefur fáni landsins verið hengdur upp í herbergi hans.

Þegar læknar komu höndum yfir hermanninn kom í ljós að hann urmull sníkjudýra héldu til í líkama hans. Þar á meðal um 27 sentímetra langur hringormur.

Sjá einnig: Urmull sníkjudýra fannst í hermanni frá Norður-Kóreu



Sérfræðingar segja það til marks um slæmt ástand heilbrigðiskerfis Norður-Kóreu. Fundur sníkjudýranna þykir einnig gefa vísbendingar um að hungursneyð ríki í landinu. Sérstaklega með tilliti til þess að hermenn Norður-Kóreu hafa yfirleitt verið fyrstir í röðinni þegar kemur að mat.

Yfirvöld Norður-Kóreu verja miklu af fjármagni sínu í her ríkisins og sömuleiðis í uppbyggingu kjarnorkuvopna og eldflauga. Það er sagt koma niður á matvælakaupum fyrir íbúa landsins.



Margir af þeim sem flýja frá Norður-Kóreu eru með sníkjudýr í meltingarvegi sínum. Það má að vissu leyti rekja til þess að Norður-kórea hefur verulega takmarkaðan aðgang að áburði. Samkvæmt frétt Washington Post notast landbúnaður ríkisins þess í stað við mikið af saur úr mönnum, sem auðvelt er að nálgast. Slík notkun saurs getur ýtt verulega undir dreifingu sníkjudýra.



Ekki hefur enn verið rætt við hermanninn sem flúði og er búist við að það verði gert í vikunni. Til skoðunar er að birta upptökur af flótta mannsins yfir landamærin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×