Innlent

Snjóflóð féll á Flateyrarveg

Birgir Olgeirsson skrifar
Frá Flateyri.
Frá Flateyri. Vísir
Nú fyrir skömmu féll snjóflóð á Flateyrarveg, nokkru fyrir innan Flateyri. Flóðið lokaði veginum og hefur Vegagerðin ekki opnað veginn. Samráð verður haft við snjóflóðavakt Veðurstofu Íslands hvenær óhætt er að opna veginn.

Vegurinn um Súðavíkurhlíð er einnig lokaður vegna snjóflóðahættu. Veðurstofa Íslands hefur lýst yfir óvissustigi vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×