Glamour

Gwyneth Paltrow trúlofuð

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Nýjustu frengir herma að leikkonan og stofnandi lífstílssíðunnar Goop, Gwyneth Paltrow sé  trúlofuð en þetta kemur fram a helstu miðlum vestanhafs. 

Hinn heppni ku vera framleiðandinn Brad Falchuk en parið kynntist árið 2014 við tökur á sjónvarpsþættinum Glee. Paltrow lék í fjórum þáttum á sjónvarpsseríunni vinsælu en Falchuk var einn af framleiðendum þáttana. Þau hafa verið par í 3 ár en ekki mikið komið saman fram opinberlega. 

Bæði eiga þau hjónabönd að baki en eins og flestir vita var Paltrow gift tónlistarmanninum Chris Martin og eiga þau saman tvö börn. Þess má geta að talsmenn leikkonunnar eiga eftir að staðfesta fregnirnar. 






×