Kvika verður meðal ráðgjafa Kaupþings við útboð Arion banka Hörður Ægisson skrifar 22. nóvember 2017 07:30 Gengið er út frá því að Kvika banki og Fossar markaðir verði í hópi innlendra ráðgjafa Kaupþings við sölu á hlut félagsins í Arion banka gegnum hlutafjárútboð. Vísir/GVA
Kvika fjárfestingabanki verður í hópi söluráðgjafa þegar ráðist verður í almennt hlutafjárútboð og skráningu Arion banka en stefnt er að því að það fari fram á fyrsta ársfjórðungi 2018. Ekki er búið að ganga frá endanlegu samkomulagi við Kviku en að sögn heimildarmanna Markaðarins sem þekkja vel til stöðu mála er gengið út frá því að bankinn verði á meðal þeirra innlendu aðila sem Kaupþing, sem á rúmlega 57 prósenta hlut í bankanum, hyggst fá til að annast sölu á hlut félagsins í fyrirhuguðu útboði Arion banka. Fossar markaðir verða einnig í þeim hópi en hlutverk verðbréfafyrirtækisins verður fyrst og fremst að safna fjárfestaloforðum frá þeim erlendum sjóðum sem hafa verið umsvifamiklir í fjárfestingum í skráðum félögum í Kauphöllinni síðustu misseri. Frá því í ársbyrjun 2016 nemur innflæði í skráð hlutabréf um 60 milljörðum og hefur sú fjárfesting erlendra sjóða að stærstum hluta komið í gegnum hlutabréfamiðlun Fossa.Hvíti hesturinnEkkert varð af útboði og skráningu Arion banka í nóvember á þessu ári, eins og áður hafði verið lagt upp með, vegna stjórnarslita og í kjölfarið kosninga til Alþingis sem fóru fram í lok síðasta mánaðar. Nú gerir Kaupþing ráð fyrir því að útboðið geti farið fram eftir birtingu ársreiknings Arion banka um miðjan febrúar á næsta ári. Miðað við núverandi eigið fé Arion banka er bókfært virði 57,4 prósenta hlutar Kaupþings í bankanum um 127 milljarðar króna. Það er talsvert meiri hlutur en áformað er að selja í útboðinu en afar sennilegt er að Kaupþing kjósi að halda eftir um 20 til 25 prósenta hlut. Söluferli Kaupþings á Arion banka gengur undir vinnuheitinu Project Cheval Blanc, eða hvítur hestur, samkvæmt heimildum Markaðarins. Á meðal þeirra atriða sem Kaupþing þarf að ná samkomulagi um við nýja ríkisstjórn er endurskoðun á mögulegum forkaupsrétti ríkisins ef hlutur í Arion banka er seldur á genginu 0,8 eða lægra miðað við eigið fé. Áður en kom til stjórnarslita Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar um miðjan september höfðu fulltrúar Kaupþings átt fjölmarga fundi með leiðtogum ríkisstjórnarinnar og embættismönnum í Seðlabanka Íslands og fjármálaráðuneytinu í því skyni að ná samkomulagi um endurskoðun ákvæðisins um forkaupsrétt ríkisins. Sú vinna var hins vegar ekki langt á veg komin. Samkvæmt þeim stöðugleikaskilyrðum sem kröfuhafar Kaupþings samþykktu haustið 2015 er gert ráð fyrir því að forkaupsréttur ríkisins sé endurskoðaður við opið hlutafjárútboð. Að öðrum kosti er enda talið að forkaupsrétturinn sem slíkur myndi valda óvissu og aftra fjárfestum frá þátttöku í útboðinu og þar með koma í veg fyrir að raunverulegt markaðsverð á bankanum yrði leitt fram. Auk Kaupþings og íslenska ríkisins, sem á 13 prósenta hlut sem Bankasýslan heldur utan um, eru stærstu hluthafar Arion banka vogunarsjóðirnir Attestor Capital, Taconic Capital, Och-Ziff Capital og fjárfestingabankinn Goldman Sachs. Keyptu erlendu fjárfestarnir tæplega 30 prósenta hlut í bankanum af Kaupþingi fyrr á árinu fyrir samtals um 49 milljarða. Fréttin birtist fyrst í Markaðnum, fylgirit Fréttablaðsins um viðskipti og fjármál.
Mest lesið Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Viðskipti innlent Hvað er opið um páskana? Neytendur Rússar flytja inn eldsneyti eftir drónaárásir Viðskipti erlent Páskaeggin frá Nóa Síríus vinsælust Neytendur Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Viðskipti innlent Stjörnugrís sektaður fyrir íslenskan fána Neytendur Lok, lok og læs hjá Gló Viðskipti innlent Trump græddi milljarða dala í dag Viðskipti erlent Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Viðskipti innlent Íslendingar duglegastir í heimi að kaupa Samsonite-ferðatöskur Samstarf Fleiri fréttir Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Lok, lok og læs hjá Gló Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Hundrað þúsund kall á haus Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Yfirmaður hjá Alvotech fékk 300 milljóna kaupauka Ráðinn nýr lögfræðingur hjá ÖBÍ Húsnæðisliðnum um að kenna en von á breytingum Fundar með Bankasýslunni í dag Bankasýslan þögul sem gröfin Festi vill sættast við Samkeppniseftirlitið Verðbólga eykst á ný Deildar meiningar um hvað sagt var í símtali Segir skilið við SVÞ eftir sextán ár í starfi Ætlar ekki að tjá sig fyrir aðalfund Landsbankans Skál flytur úr mathöllinni Fyrirhuguð löggjöf muni ekki laga leigumarkað í lamasessi Telja sig hafa gert nóg til að upplýsa Bankasýsluna Bankaráð Landsbankans svarar fyrir sig Opna nýja frjósemismiðstöð á haustmánuðum Fjárfestar líta í síauknum mæli til mikilvægis kynjajafnréttis Leiðinlegt með loðnuna en svona er þetta bara Pizzan reynir að eigna sér Megaviku Domino's Ráðinn framkvæmdastjóri úr hópi 27 umsækjenda Jón hættir sem stjórnarformaður Sýnar Eydís og Þorvaldur til Genís Setur 100 milljónir í að leiðrétta erlendan fréttaflutning um eldgosin Bein útsending: Orkuöryggi – Hverju getum við áorkað? Hitnar í fasteignamarkaði vegna íbúðakaupa Grindvíkinga Forsprakki verkefnisins „Stækkaðu framtíðina“ heimsótti Landakotsskóla Sjá meira