Innlent

Hitti loks Helga

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Cherie Lockett og Helgi Hannesson
Cherie Lockett og Helgi Hannesson
Gömlu skólafélagarnir Cherie Lockett og Helgi Hannesson hittust er hún dvaldi hér á landi. Fréttablaðið greindi frá því nýlega að Cherie leitaði Helga. Þau voru saman í barnaskóla í Michigan 1961.

„Ég mundi eftir honum vegna allra þeirra hugmynda sem ég hafði um Reykjavík. Hann mundi nú ekkert eftir mér. En það er allt í lagi,“ sagði Cherie, sem er farin utan en býst við því að verða áfram í sambandi við Helga. „Ég mun reyndar hitta bróður hans í Bandaríkjunum. Hann hafði samband við mig á Facebook.“

„Hún er indæl kona og það var gaman að spjalla við hana,“ segir Helgi um fundinn með Cherie.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×