Fótbolti

Ronaldo farinn að skora, sjáðu mörk kvöldsins í Meistaradeildinni │ Myndbönd

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Cristiano Ronaldo spilar með Real Madrid í spænsku deildinni.
Cristiano Ronaldo spilar með Real Madrid í spænsku deildinni. Vísir/Getty
Cristiano Ronaldo fann loksins skotskóna þegar Real Madrid sótti APOEL heim í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

Ronaldo skoraði tvö mörk í 0-6 sigri Real. Karim Benzema, Nacho Monreal og Luka Modric gerðu hin mörk Evrópumeistaranna.

Liverpool komst 0-3 yfir gegn Sevilla á fyrsta hálftímanum, en heimamenn jöfnuðu á ótrúlegan hátt.

Tottenham bar sigurorð af Dortmund, Manchester City lagði Feyenoord og Leipzig vann stórsigur á Mónakó 1-4.

Öll mörk þessara leikja má sjá í spilurunum hér í fréttinni.

Sevilla - Liverpool 3-3
APOEL - Real Madrid 0-6
Dortmund - Tottenham 1-2
Manchester City - Feyenoord 1-0
Mónakó - RB Leipzig 1-4



Fleiri fréttir

Sjá meira


×