Innlent

Gleymdi tönnunum í Austurstræti

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Ekki fylgir sögunni hvort viðskiptavinurinn hafi stungið tönnunum í vatnsglasið sitt áður en hann yfirgaf staðinn.
Ekki fylgir sögunni hvort viðskiptavinurinn hafi stungið tönnunum í vatnsglasið sitt áður en hann yfirgaf staðinn. Vísir/Getty
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk heldur óvenjulega tilkynningu á sjöunda tímanum í gærkvöldi.

Óskað var eftir aðstoð lögreglu á veitingahúsi við Austurstræti vegna ölvaðs viðskiptavinar. Hann hafiði þó ekki verið með óspektir eða neitað að borga. Hann hefði einfaldlega gleymt tönnunum sínum á borðinu þegar hann yfirgaf staðinn.

Tennurnar, sem lögreglan tekur sérstaklega fram að hafi verið gervitennur, bíða nú eiganda síns í óskilamunadeild lögreglunnar á Hverfisgötu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×