Menning

Nóbel í tónum í Norræna húsinu

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Hrönn og Bylgja Dís ætla að flytja tilfinningaríka tónlist við ljóð tveggja Nóbelskálda.
Hrönn og Bylgja Dís ætla að flytja tilfinningaríka tónlist við ljóð tveggja Nóbelskálda. Vísir/Vilhelm
Kvöldið er helgað samtímatónlist og tveimur nóbelskáldum, Halldóri Laxness og Bob Dylan, í Norræna húsinu í kvöld klukkan 20. „Við ætlum að byrja á að flytja þrjú falleg lög eftir Eirík Árna Sigtryggsson við ljóð Kiljans, segir Bylgja Dís Gunnarsdóttir sópran sem kemur fram ásamt Hrönn Þráinsdóttur píanóleikara.

 „Svo tökum við ljóðaflokkinn Mr. Tambourine Man eftir John Corigliano, við sjö ljóð Dylans. Sem heild myndar hann andlegt þroskaferli mannsins. Byrjar á Mr. Tamb­ourine Man sem er ákall eftir andagift, í þriðja ljóðinu, Blowing in the Wind, er spurt stórra spurninga og þannig heldur verkið áfram þar til kemur að einhvers konar niðurstöðu hjá söguhetjunni. Hún leitar skjóls undan þrumum og eldingum við kirkju og flokkurinn endar á fallegu vögguljóði sem kirkjuklukkurnar smitast inn í,“ lýsir Bylgja Dís sem segir gaman að flytja þetta efni og öðruvísi en flest annað.

„Þetta er nútímatónlist sem gerir kröfur, því það sem píanistinn spilar styður ekki endilega mikið við söngvarann. Þetta er ekki eins og að setja Dylan á fóninn en ég get lofað því að tónlistin er áhrifamikil því höfundurinn skapar svo flottan hljóðheim, fallegar laglínur og líka tilfinningahita þar sem hið leikræna fær að njóta sín.“ 

 Ljóðin verða útprentuð og fyrir flutninginn verður kynning á efninu þar sem Hrönn ætlar að spila einstaka kafla, að sögn Bylgju Dísar. „Þá veit fólk hverju það getur hlustað eftir.

Tónleikarnir nefnast Nóbel í tónum og tilheyra röðinni Klassík í Vatnsmýrinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×