Bílar

10 öflugustu 4 strokka bílarnir

Finnur Thorlacius skrifar
Mercedes Benz AMG CLA45 er 375 hestöfl með aðeins 2,0 lítra vél.
Mercedes Benz AMG CLA45 er 375 hestöfl með aðeins 2,0 lítra vél.
Það þarf ekki lengur bíla með 8 strokka vélar til að vera yfir 300 hestöfl því finna má einar 10 bílgerðir með fjögurra strokka vélar sem eru öflugri en 300 hestöfl. Nútíma öflugar fjögurra strokka vélar notast við forþjöppur, beina innspýtingu, keflablásara og breytanlegan opnunartíma ventla til að ná sem mestu afli útúr litlu sprengirými þeirra.

Öflugasti fjögurra strokka fjöldaframleiddi bíllinn er Mercedes Benz AMG CLA45 og GLA45, en þeir eru 375 hestöfl og Volvo S60/V60 Polestar er ekki langt á eftir með sín 362 hestöfl, en allir þessir bílar eru með aðeins 2,0 lítra sprengirými. Listi 10 öflugust fjögurra strokka bíla heims er svona:





  1. Mercedes Benz AMG CLA45 og GLA45 - 375 hestöfl – 2,0 lítra vél
  2. Volvo S60/V60 – 362 hestöfl – 2,0 lítra vél
  3. Ford Focus RS – 350 hestöfl – 2,3 lítra vél
  4. Porsche 718 Boxster S/718 Cayman S – 350 hestöfl – 2,5 lítra vél
  5. Volvo XC90/S90/V90/V90 Cross Country/XC60 – 316 hestöfl – 2,0 lítra vél
  6. Ford Mustang EvoBoost – 310 hestöfl – 2,3 lítra vél
  7. Volkswagen Golf R/Audi S3/Audi TT S – 310 hestöfl – 2,0 lítra vél
  8. Honda Civic Type R – 306 hestöfl – 2,0 lítra vél
  9. Subaru WRX STI – 305 hestöfl – 2,5 lítra vél
  10. Porsche 718 Boxster/718 Cayman – 300 hestöfl – 2,5 lítra vél



Fleiri fréttir

Sjá meira


×