Lífið

Hæð og smæð stjarnanna

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Stundum er gaman að velta sér upp úr gjörsamlega tilgangslausum hlutum, eins og hæð stjarnanna.
Stundum er gaman að velta sér upp úr gjörsamlega tilgangslausum hlutum, eins og hæð stjarnanna. Vísir / Samsett mynd
Á kvikmyndavefsíðunni IMDb er að finna ýmsar upplýsingar um okkar þekktustu listamenn - til dæmis hve háir þeir eru.

Við ákváðum því að skyggnast á bak við sentímetrana og athuga hve hátt, nú eða smátt, okkar hæfileikaríka listafólk eru.

Björk, Anita, Nína og Elma.Vísir / Samsett mynd
Ef við byrjum á þeim sem lægstir eru þá eru þær Björk Guðmundsdóttir og Anita Briem jafnar, 163 sentímetrar hvor. 

Þetta er ágætismeðalhæð kvenna, en þess má geta að Björk og Anita eru jafn háar og leikkonur eins og Rachel McAdams, Megan Fox og Mila Kunis. Ekki slæmur hópur að slást í þar!

Aðeins fyrir ofan þær Anitu og Björk eru leikkonurnar Nína Dögg Filippusdóttir, sem er 165 sentímetra há, og leikkonan Elma Stefanía Ágústsdóttir, sem slær Nínu við um einn sentímetra og mælist 166 sentímetrar að hæð. 

Dæmi um leikkonur sem eru 165 sentímetra háar eru Kate Bosworth og Selena Gomez. Þess má geta að fjölmargar leikkonur eru lægri en Björk, Anita, Nína og Elma ef tölur IMDb eru réttar. Á þeim lista eru til dæmis Winona Ryder (161 cm), Rachel Bilson (155 cm), Scarlett Johansson (160 cm), Sarah Jessica Parker (160 cm) og Eva Longoria (157 cm).

Berglind, Heiða og Hera.Vísir / Samsett mynd
Berglind hæst kvenna

Þrjár leikkonur í úrtakinu okkar eru 170 sentímetra háar eða hærri, en það eru Heiða Rún og Hera Hilmarsdóttir, báðar 170 sentímetrar hvor, og Berglind Icey, sem ber höfuð og herðar yfir aðrar leikkonur í 179 sentímetrum. Hún er jafnframt hæsta leikkonan á listanum okkar, og hærri en tveir af karlmönnunum á listanum. 

Dæmi um hávaxnar leikkonur í Hollywood eru Uma Thurman (183 cm), Famke Janssen (183 cm) og Julia Roberts (173 cm).

Magnús og Þorvaldur Davíð.Vísir / Samsett mynd
Íþróttaálfurinn lægstur karla

Ef við færum okkur yfir í karlpeninginn í úrtakinu okkar þá er Íþróttaálfurinn Magnús Scheving lægstur af þeim, 174 sentímerar að hæð. Þorvaldur Davíð Kristjánsson er örlítið hærri, eða 178 sentímetra hár. 

Dæmi um erlenda leikara sem eru lægri en 180 sentímetrar að hæð eru Antonio Banderas (174 cm), Danny DeVito (152 cm), Tom Cruise (170 cm) og Al Pacino (170 cm).

Ólafur Darri og Gísli Örn.Vísir / Samsett mynd
Ólafur Darri hástökkvari

Því næst koma nokkrir listamenn sem eru allir frekar svipaðir að hæð. Við erum að tala um leikarana Darra Ingólfsson (180 cm), Jóhannes Hauk Jóhannesson (185 cm), Ingvar E. Sigurðsson (186 cm) og Stefán Karl Stefánsson (189 cm). Leikarinn og leikstjórinn Baltasar Kormákur teygir sig í þennan hóp, 186 sentímetrar að hæð. 

Hástökkvarar á listanum eru hins vegar leikararnir Gísli Örn Garðarsson og Ólafur Darri Ólafsson. Gísli er 190 sentímetrar að hæð en Ólafur Darri er hæstur og telur 194 sentímetra.

Nóg er til af hávöxnum leikurum í Hollywood, til dæmis Vince Vaughn (196 cm), Dwayne Johnson (196 cm), Jeff Goldblum (194 cm) og Liam Neeson (193 cm).






Fleiri fréttir

Sjá meira


×