Viðskipti innlent

Hagnaður Landsvirkjunar jókst um nærri 3 milljarða

Daníel Freyr Birkisson skrifar
Höfuðstöðvar Landsvirkjunar í Reykjavík.
Höfuðstöðvar Landsvirkjunar í Reykjavík. Vísir/Vilhelm
Landsvirkjun sendi í dag frá sér níu mánaða uppgjör og kemur þar fram að hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði eykst um 29,4 prósent á milli tímabila. Hann nemur þar 12,1 milljarði króna, samanborið við 9,3 milljarða í fyrra.

Rekstrartekjur námu 36,5 milljörðum króna og hækka því um 13,1 prósent frá sama tímabili í fyrra.

Hagnaður tímabilsins var 3,2 milljarðar á milli tímabila, 8,2 milljarðar nú en tæplega 5 í fyrra.

EBITDA nam 26,2 milljörðum króna og er það 71,9 prósent af tekjum, en á sama tíma í fyrra var hlutfallið 73,5 prósent.

Handbært fé frá rekstri nam 21 milljarði króna og er það 16,2 prósent hækkun frá sama tímabili fyrir ári.

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir áfram vera mikla eftirspurn eftir raforku frá Landsvirkjun.

„Fyrstu níu mánuðir ársins voru hagfelldir í rekstri fyrirtækisins. Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði hækkaði um 29% frá sama tímabili ársins áður. Tekjur jukust, m.a. vegna þess að álverð hækkaði umtalsvert eftir að hafa verið mjög lágt á síðasta ári. Orkusala jókst um 435 Gwst á fyrstu níu mánuðunum og er áfram mikil eftirspurn eftir raforku frá Landsvirkjun.

Sterkt sjóðstreymi stendur að fullu undir umfangsmiklum fjárfestingum á tímabilinu, en þó hefur hægt tímabundið á lækkun skulda á meðan á framkvæmdum við Þeistareyki og Búrfell II stendur. Þeistareykjastöð var gangsett 17. nóvember og senn líður að því að rekstur hennar fari að skila Landsvirkjun tekjum,“ segir Hörður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×