Viðskipti innlent

Bílaleigur hamstra til að fá afslátt vörugjalda

Sveinn Arnarsson skrifar
Íslendingar virðast ætla að slá met í innflutningi nýrra bifreiða þetta árið.
Íslendingar virðast ætla að slá met í innflutningi nýrra bifreiða þetta árið. Vísir/eyþór
Bílaleigufyrirtæki nýta nú síðustu daga ársins til að kaupa inn bíla. Um áramót verða afnumdir afslættir fyrirtækjanna á vörugjöldum af nýjum bifreiðum.

Eimskip og Samskip finna fyrir auknum innflutningi og þarf Samskip að fara fleiri ferðir frá meginlandi Evrópu.

Steingrímur Birgisson, forstjóri Hölds, segir verð á bílum til þeirra hækka um allt að hálfa milljón.

Anna Guðný Aradóttir, markaðsstjóri Samskipa
„Við höfum verið að kaupa inn bíla í haust til að deyfa þetta högg,“ segir Steingrímur. „Þessar breytingar munu kosta okkar fyrirtæki um þrjú hundruð milljónir á ári og rúma tvo milljarða árlega fyrir greinina í heild.“

Innflutningur til landsins er svo mikill að áætlanakerfi Samskipa hefur ekki undan í haust og hefur fyrirtækið brugðið á það ráð að fara aukaferðir.

„Það er meira að gera í innflutningi þetta haustið en oft áður. Við höfum verið með nokkur aukaskip og sjáum ekki enn hvort við þurfum að fara fleiri aukaferðir,“ segir Anna Guðný Aradóttir, forstöðumaður markaðs - og samskiptadeildar Samskipa.

Steingrímur Birgisson, forstjóri Hölds ehf - Bílaleigu Akureyrar.
„Við sjáum aukningu í bifreiðum og þegar við þurfum að taka aukaskip er það til að hreinsa upp það sem ekki hefur komið í skip okkar, bæði almenna vöru en líka bifreiðar.“

Árið í ár verður að öllum líkindum metár hjá Samgöngustofu þegar kemur að forskráningu ökutækja. Frá hruni hefur forskráningum fjölgað gífurlega, úr því að vera 2.000 bifreiðar árið 2009 í að verða yfir 33.500 á þessu ári.

Bílaleigur hér á landi hafa notið niðurfellingar á vörugjöldum sem að hámarki eru 500 þúsund á hverja bifreið. Nú stendur til að taka þessa niðurfellingu af og því þurfa þær að greiða vörugjöld.

„Við höfum bent á að bílaleiga er eina greinin innan ferðaþjónustu í hæsta virðisaukaskattsþrepi. Okkur var á sínum tíma lofað einhverjum mótvægisaðgerðum en við höfum ekki séð þær enn sem komið er,“ segir Steingrímur. „Þetta mun leggjast þungt á greinina og afkomu fyrirtækjanna.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×