Erlent

Hafa skipt út öllum vörðum sín megin við landamærin

Samúel Karl Ólason skrifar
Hermenn Norður-Kóreu á sameiginlega öryggissvæðinu.
Hermenn Norður-Kóreu á sameiginlega öryggissvæðinu. Vísir/EPA
Yfirvöld í Suður-Kóreu telja að nágrannar þeirra í norðri hafi skipt út öllum landamæravörðum sínum á sameiginlegu öryggissvæði á landamærum ríkjanna. Það hafi verið gert eftir að hermanni Norður-Kóreu tókst að flýja yfir landamærin á hlaupum og undir skothríð félaga sinna.

Heimildarmaður Yonhap fréttaveitunnar innan leyniþjónustu Suður-Kóreu segir mögulegt að foringjum herdeildarinnar sem sjái um landamæravörsluna hafi verið refsað.



Sameinuðu þjóðirnar segja að hermenn Norður-Kóreu hafi rofið vopnahléssamkomulag ríkjanna þegar atvikið átti sér stað þann 13. nóvember. Einn hermaður hljóp á eftir flóttamanninum yfir landamærin áður en hann áttaði sig á því og sneri við og nokkrir hermenn skutu yfir landamærin. Flóttamaðurinn var særður fimm sinnum og var í alvarlegu ástandi.

Sjá einnig: Birtu myndband af flótta hermannsins frá Norður-Kóreu



Á sameiginlegu öryggissvæði ríkjanna standa hermenn Norður- og Suður-Kóreu nánast andspænis hvorum öðrum og svæðið er mjög víggirt. Talið er að þetta sé í einungis þriðja sinn sem einhverjum tekst að flýja yfir landamæri á öryggissvæðinu síðan samið var um vopnahlé árið 1953.

Í frétt Yonhap segir að aðgengi að öryggissvæðinu úr norðri hafi verið hert og náið sé fylgst með öllum þeim sem fari þangað Norður-Kóreumegin.

Sex hermenn frá Suður-Kóreu og Bandaríkjunum hafa fengið viðurkenningu fyrir að hafa skriðið að landamærunum og bjargað flóttamanninum, þar sem hann lá alvarlega særður skammt frá þeim.

Þegar læknar komu höndum yfir hermanninn kom í ljós að hann urmull sníkjudýra héldu til í líkama hans. Þar á meðal um 27 sentímetra langur hringormur.

Sjá einnig: Hermaðurinn vaknaður og horfir á suðurkóreskar kvikmyndir



Sérfræðingar segja það til marks um slæmt ástand heilbrigðiskerfis Norður-Kóreu. Fundur sníkjudýranna þykir einnig gefa vísbendingar um að hungursneyð ríki í landinu. Sérstaklega með tilliti til þess að hermenn Norður-Kóreu hafa yfirleitt verið fyrstir í röðinni þegar kemur að mat.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×