Tíska og hönnun

Fimm hlutir sem þú vissir ekki um tískusýningu Victoria's Secret

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Jasmine Tookes sýnir glæsilegt undirfatasett.
Jasmine Tookes sýnir glæsilegt undirfatasett. Vísir / Getty Images
Hin árlega tískusýning nærfatarisans Victoria’s Secret verður sýnd í sjónvarpinu þann 28. nóvember næstkomandi, en herlegheitin voru tekin upp fyrir stuttu í Kína. Meðal listamanna sem koma fram á þessum viðburði, sem er einn sá stærsti sinnar tegundar, eru Harry Styles og Miguel.

Alls ganga 55 fyrirsætur tískupallana og því er í nægu að snúast baksviðs þannig að allt gangi smurt fyrir sig. Við skyggndumst inní heim fyrirsætanna og hvað felst nákvæmlega í viðburði af þessari stærðargráðu.

Það borgar sig að æfa sig á háu hælunum svo ekkert fari úrskeiðis.Vísir / Getty Images
1. Fyrirsæturnar æfa sig í hælunum

Um leið og fyrirsæturnar vita í hvaða skóm þær verða í á sýningunni sjálfri, byrja þær að æfa sig að ganga í þeim. 

Það er blátt bann við að mæta í íþróttaskóm á æfingar eða í búningamátun og þurfa fyrirsæturnar að þramma um allt í hælunum þar til þær eru öruggar í þeim.

Þessi regla er sett svo fyrirsætunum líði vel á tískupallinum og verði ekki fyrir óhappi, til dæmis að misstíga sig eða detta.

Búningarnir eru oft ansi efnislitlir.Vísir / Getty Images
2. Húðlitaðar nærbuxur

Búningar í tískusýningu Victoria’s Secret eru oft ansi efnislitlir. Því er gripið á það ráð að klæða sumar fyrirsæturnar í húðlitaða G-strengi undir nærfötunum sem þær eru að sýna.

Þannig er komið í veg fyrir að líkamspartar sem eiga ekki að sjást séu huldir. 

Margra klukkutíma vinna fer í að fullkomna eitt svona lúkk.Vísir / Getty Images
3. Límband er besti vinur módela

Baksviðs á tískusýningunni má finna endalausar rúllur af límbandi með lími báðu megin. 

Límbandið er notað til að halda öllu á sínum stað, hvort sem það eru brjóstahaldarar eða uppháir sokkar. 

Eins og með húðlituðu G-strengina, þá er þetta gert til að tryggja að ekkert sjáist í útsendingunni sem getur hneykslað áhorfendur og auðvitað til að láta fyrirsætunum líða vel.

Búningar geta rifnað og þá eru fyrirsæturnar saumaðar í þá.Vísir / Getty Images
4. Saumaðar í búningana

Það kemur fyrir að búningar á tískusýningunni rifna þegar fyrirsæturnar klæða sig í þá, og eru mörg dæmi um slíkt. 

Ef slíkt neyðarástand skapast, er nóg af saumakonum á svæðinu með nál og tvinna að vopni, sem einfaldlega sauma búningana utan á fyrirsæturnar.

Þá getur verið þrautinni þyngra að komast úr búningunum aftur, en sem betur fer er nóg af aðstoðarfólki innan handar.

Sýningin verður sýnd í sjónvarpi í lok þessa mánaðar.Vísir / Getty Images
5. Margir tímar í make-up

Fyrirsæturnar eru fallegar frá náttúrunnar hendi, en þurfa samt sem áður að stija í förðurnarstólnum í marga  klukkutíma fyrir sýninguna, þá bæði til að láta farða sig, dytta að neglum og greiða hár.

Alls vinna 32 förðunarfræðingar, 27 hárgreiðslumeistarar og 11 snyrtifræðingar við sýninguna og tryggja að  útlit fyrirsætanna sé ávallt óaðfinnanlegt. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×