Fótbolti

Settur í bann fyrir að heimsækja krabbameinsveikan vin

Marcelo Bielsa er skrautlegur karakter.
Marcelo Bielsa er skrautlegur karakter. vísir/getty
Franska úrvalsdeildarliðið Lille hefur sett knattspyrnustjórann Marcelo Bielsa í tímabundið bann.

Samkvæmt frönskum fjölmiðlum fór Bielsa í leyfisleysi til Síle til að heimsækja vin sinn sem glímir við krabbamein.

Ekki er vitað hversu langt bannið verður en í yfirlýsingu frá Lille segir að mál Bielsas sé í skoðun.

Það hefur hvorki gengið né rekið hjá Lille á tímabilinu. Liðið hefur tapað sjö af fyrstu 13 leikjum sínum og situr í nítjánda og næstneðsta sæti frönsku deildarinnar.

Bielsa er einn áhrifamesti fótboltahugsuður seinni ára. Hann hefur t.d. haft mikil áhrif á Pep Guardiola sem kallaði Argentínumanninn snilling.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×