Handbolti

Allt klárt hjá strákunum okkar: Leikir við Japani og Þjóðverja og spilað í Split

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Strákarnir okkar mæta Japan og Þýskalandi áður en þeir fara til Króatíu.
Strákarnir okkar mæta Japan og Þýskalandi áður en þeir fara til Króatíu. vísir/ernir
Strákarnir okkar í íslenska landsliðinu í handbolta munu spila í Split á EM 2018 sem hefst um miðjan næsta mánuð eins og kom fram fyrr í dag. Vangaveltur voru uppi um mögulega breytingu á leikstað eftir fréttir gærdagsins.

Róbert Geir Gíslason, framkvæmdastjóri HSÍ, nánast staðfestir að spilað verður í Split en engin umræða hefur verið um annað nema í fréttamiðlum í Serbíu og í Ungverjalandi. Hann ræddi málið í Akraborginni á X977 í dag.

„Samkvæmt EHF er þetta mál stormur í vatnsglasi, enn sem komið er. Samkvæmt þeim upplýsingum frá þeim sem ég fékk í morgun stendur ekkert annað til en að leikirnir fari fram í Split og engin umræða um neitt annað hefur átt sér stað,“ segir Róbert Geir.

„Það er ekkert sem bendir til annars en að spilað verður í Split. Engar fréttir eða tilkynningar frá mótshöldurum hafa borist okkur né EHF.“

Undirbúningur strákanna okkar er klár en þeir koma saman 28. desember og æfa í Reykjavík. Eins og Dagur Sigurðsson greindi frá í Seinni bylgjunni á Stöð 2 Sport HD mætir Japan í heimsókn í janúar og spilar vináttuleik við Ísland 3. janúar.

Það verður kveðjuleikur strákanna því daginn eftir fljúga þeir til Þýskalands og mæta Evrópumeisturum Þjóðverja í tveimur vináttuleikjum fimmta og sjöunda janúar. Íslenska liðið æfir í Þýskalandi til tíunda janúar og ferðast þá til Split.

Fyrsti leikur strákanna okkar á EM verður svo á móti Kristjáni Andréssyni og sænska landsliðinu tólfta janúar í Split en einnig eru í riðlinum Serbar og gestgjafar Króata.

Viðtalið við Róbert Geir Gíslason úr Akraborginni má heyra hér að neðan.


Tengdar fréttir

Höllin sem Ísland leikur í ónothæf

Þegar tæpir tveir mánuðir eru í að Evrópumeistaramótið í handbolta hefjist í Króatíu er enn allt í óreiðu í kringum keppnishöllina þar sem leikir Íslands eiga að fara fram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×