Handbolti

Auðvelt hjá Aroni og félögum í Meistaradeildinni

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Aron Pálmarsson hafði hægt um sig.
Aron Pálmarsson hafði hægt um sig. mynd/barcelona
Aron Pálmarsson og félagar í stórliði Barcelona unnu auðveldan útisigur á PPD Zagreb, 32-24, í níundu umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í handbolta í kvöld.

Sigurinn var aldrei í hættu hjá Börsungum á móti króatíska liðinu sem skipti um þjálfara í fimmta sinn á árinu fyrr í þessari viku.

Aron hafði hægt um sig í leiknum og skoraði tvö mörk en hann spilaði stærstan hluta leiksins. Hann er alltaf að komast í betra leikform eftir að byrja tímabilið mun seint.

Börsungar eru eftir sigurinn í öðru sæti A-riðils með tólf stig en hin liðin í riðlinum eiga eftir að spila í níundu umferðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×