Körfubolti

Kvöld fullt af glæsilegum NBA-troðslum | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
LeBron James treður boltanum í körfuna með miklum tilþrifum.
LeBron James treður boltanum í körfuna með miklum tilþrifum. Vísir/Getty
NBA-leikmennirnir fengu hvíld í nótt en bandaríska þjóðin hélt þá upp á Þakkargjörðarhátíðina og enginn leikur fór fram í NBA-deildinni.

Það voru aftur á móti margir leikir spilaðir kvöldið áður og því nóg að taka af flottum tilþrifum.

Þeir hjá NBA ákváðu að setja saman 23 mínútna myndband af toðslum úr leikjunum í fyrrinótt svona til að gleðja áhugamenn sem söknuðu þess að ekkert liða NBA deildarinnar væri að spila í nótt.

Það er svo sannarlega nóg af taka í þessu myndbandi enda hver glæsilega troðslan á fætur annarri.

NBA-deildin fer síðan aftur af stað í nótt þar sem fara fram tíu leikir.

Hér fyrir neðan má sjá myndbandið frá NBA kvöldi sem var fullt af glæsilegum troðslum.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×