Lífið

Ragnar henti í athyglisverða prófílmynd

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ragnar hefur fengið á sig mikla gagnrýni í vikunni.
Ragnar hefur fengið á sig mikla gagnrýni í vikunni.
Ragnar Önundarson viðskiptafræðingur átti sviðið á samfélagsmiðlum í vikunni þegar hann setti spurningamerki við mynd sem Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, hefur á Facebook-síðu sinni.

Færslu Ragnars má sjá hér að neðan. Hann birti hana eftir að Áslaug Arna hafði setið fyrir svörum í Kastljósþætti þar sem til umræðu var sú krafa á fjórða hundrað kvenna í stjórnmálum á Íslandi að breytinga sé þörf í samfélagi stjórnmálanna hér á landi. Áslaug Arna og Jóhanna María Sigmundsdóttir, fyrrverandi þingmaður Framsóknar, lýstu því meðal annars að hluti af því áreiti sem ungar þingkonur verða fyrir, þær eru báðar á þrítugsaldri, sneri að því hvernig þær ættu að hafa sig til, vera málaðar og sætar.

Í gær birti Ragnar aftur á móti mynd af sjálfum sér á Facebook þar sem hann hafði komið andliti sínu fyrir við mynd Áslaugar.

Hér að neðan má sjá þá mynd.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×