Innlent

Hjalti Úrsus kemur syni sínum til varnar með heimildarmynd

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Hjalti, ásamt syni sínum Árna.
Hjalti, ásamt syni sínum Árna.
Aflraunamaðurinn Hjalti Úrsus Árnason hefur gefið út heimildarmynd þar sem hann fjallar um rannsókn lögreglu og dómsmál á hendur syni hans, Árna Hjaltasyni, sem á árinu var dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps. Hjalti ber lögreglu og saksóknara þungum sökum og talar um að framið hafi verið dómsmorð á syni hans.

Heimildarmyndin ber nafnið „Fall Risans - rangar sakargiftir,“ og er um 24 mínúta löng og hefur Hjalti birt hana á eigin Facebook-síðu, auk þess sem horfa má á hana hér fyrir neðan.

Sjá einnig: Sonur Hjalta berrassaður í yfirheyrslu

Sonur Hjalta var sem fyrr segir dæmdur í fjögurra ára fangelsi en hefur setið í gæsluvarðhaldi frá því að hann var handtekinn, alls í rúma 260 daga. Áfrýjun málsins verður tekin fyrir hjá Hæstarétti næstkomandi mánudag. Í heimildarmyndinni fer Hjalti yfir málið, fortíð Árna sem hefur glímt við neyslu áfengis og fíkniefna. Þá fer Hjalti yfir rannsókn málsins hjá lögreglunni sem Hjalti segir að hafi verið verulega ábótavant, auk þess sem hann gagnrýnir Héraðsdóm Reykjavíkur.

Vísir hefur áður fjallað ítarlega um þá annmarka sem Hjalti telur að hafi verið á málinu en hann telur meðal annars að lögreglan hafi verið búin að ákveða niðurstöðu rannsóknar málsins fyrir fram.

Í samtali við Vísi segir Hjalti að hann hafi séð sig knúinn til þess að ráðast í gerð heimildarmyndarinnar til þess að sem flestir gætu áttað sig á málinu. Hann hafi rekið sig á það honum hafi reynst erfitt að útskýra málið á trúverðugan hátt fyrir vinum og vandamönnum. Því hafi verið best að gera heimildarmynd þar sem stiklað væri á stóru á málinu.

„Ég var með hana strax í huga af því að þegar ég var að segja fólki hvað hafði gerst, fann ég að það hætti að trúa mér eftir þrjár mínútur, þetta virkaði eins og lygi þó þetta væri allt satt. Fólk missti þráðinn og þá fann ég að ég yrði að gera mynd,“ segir Hjalti. „Ég verð að birta gögnin úr málinu svo að þetta væri ekki bara ég að segja frá, gögn málsins eru líka að segja sögu.“

Í heimildarmyndinni fer Hjalti yfir rannsókn málsins, ræðir við vitni og birtir rannsóknargögn auk þess sem að hann fer á vettvang þar sem árásin átti að hafa sér stað, við Leifasjoppu í Iðufelli.

Hjalti segir mikilvægt að vekja athygli á málinu nú þegar styttist í að áfrýjunin verði tekin fyrir í Hæstarétti, en hann er vongóður um að málið endi betur fyrir son sinn fyrir Hæstarétti, en það gerði í héraðsdómi.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×