Tónlist

Sigga Beinteins og Sigur Rós taka höndum saman á jólatónleikum

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Áhugavert samstarf er framundan.
Áhugavert samstarf er framundan. Vísir/Getty
Sönkonan Sigríður Beinteinsdóttir, mun ásamt góðkunnum listamönnum, koma fram á sérstökum jólatónleikum með hljómsveitinni Sigur Rós. Tónleikarnir eru hluti af Norður og niður, tónlistarhátið Sigur Rósar sem haldin verður í Hörpu um jólin.

Tónleikarnir verða haldnir þann 27. desember en hugmyndina áttu meðlimir Sigur Rósar en þeir vildu heyra öll þessi vinsælu jólalög í annars konar, myrkari búningi, að því er kemur fram í fréttatilkynningu.

Samúel Jón Samúelsson, betur þekktur sem Sammi í Jagúar, mun stjórna hljómsveitinni en hann, ásamt meðlimum Sigur Rósar, hafa kallað til einvalalið innlendra sem erlendra tónlistarmanna.

Tónleikarnir eru auglýstir sem glæsilegir en lágstemmdir hátíðartónleikar „fyrir fólk sem er enn í jólaskapi en orðið nokkuð þreytt á hefðbundnum jólalögum.“

Fram koma Alexis Taylor úr Hot Chip, Peaches, Björgvin Halldórsson, Daníel Ágúst, Helga Möller, Helgi Björns, Katrína Mogensen (Mammút), Laddi, Ragga Gísla, Sigga Beinteins og Svala og er það hlutverk þeirra að „búa til fallegar, lítillátar ábreiður fyrir okkar mikilfenglegu hátíðarlög líkt og fönn sem fellur af himnum ofan á friðsælli vetrarnóttu.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×