Handbolti

Arnór markahæstur í toppslag

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Arnór Þór er markahæstur í þýsku B-deildinni.
Arnór Þór er markahæstur í þýsku B-deildinni. vísir/eyþór
Arnór Þór Gunnarsson heldur áfram að skora eins og óður maður fyrir Bergischer í þýsku B-deildinni í handbolta.

Arnór skoraði níu mörk og var markahæstur hjá Bergischer sem vann öruggan sigur á Bietigheim, 23-33, í toppslag í kvöld.

Fátt virðist geta komið í veg fyrir að Bergischer endurheimti sæti sitt í þýsku úrvalsdeildinni en liðið hefur unnið alla 15 leiki sína í B-deildinni það sem af er tímabili. Bergischer er með níu stiga forskot á Bietigheim.

Arnór er markahæstur í þýsku B-deildinni með 123 mörk í 15 leikjum, eða 8,2 mörk að meðaltali í leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×